Pókerfréttir
Viðburðir // Mót // Fundir // Fróðleikur // Íslenskir spilarar erlendis
Viðburðir // Mót // Fundir // Fróðleikur // Íslenskir spilarar erlendis
(Information in English below) Íslandsmótið í póker 2023 verður haldið dagana 2.-5. nóv. og mun það fara fram í sal Hugaríþróttafélagins, Mörkinni 4. (Google Maps link) Dagur 1 verður leikinn í tvennu lagi líkt og undanfarin ár, dagur 1a fimmtudaginn 2. nóv. og dagur 1b föstudaginn 3. nóv. Leikur hefst kl. 17:00 báða dagana. Dagur […]
Íslandsmótinu í Pot-Limit-Omaha lauk rétt fyrir miðnætti í gær með sigri Ingvars Óskars Sveinssonar. Í öðru sæti varð Örn Árnason og í því þriðja varð Sævar Ingi Sævarsson. Mótið hófst klukkan 14:00 og fór fram í salarkynnum Poker Express. Þátttakendur voru 19 talsins og keyptu 8 þeirra sig inn aftur en eitt re-entry er leyft […]
Íslandsmótavertíðin er orðin fastur liður á haustin hjá okkur og fyrsta mót haustsins er Íslandsmótið í Pot-Limit-Omaha. Mótið fer fram í sal Poker Express laugardaginn 2. september og hefst kl. 14:00. Sjá staðsetningu hér á Google Maps. Þátttökugjald er kr. 40.000 og hækkar fyrir seinar skráningar eftir kl. 10:00 að morgni mótsdags í kr. 45.000. […]
Það var Egill Þorsteinsson sem vann sigur á Stórbokkanum í ár eftir stutta og snarpa heads-up viðureign við Halldór Má Sverrisson sem varð í öðru sæti. Egill hafði fallið úr leik skömmu fyrir hlé og keypti sig aftur inn í matarhléinu og náði jafnt og þétt að byggja upp góðan stakk. Halldór Már fór gríðarlega […]
Stórbokki hlaut gríðarlega góðar viðtökur þegar mótið var haldið í fyrsta sinn eftir Covid hléið í fyrra, en mótið féll niður árin 2020 og 2021. Mótið verður með sama sniði og fyrri ár, mótið hefst kl. 13:00 og mun standa eitthvað fram yfir miðnættið. Þátttökugjald er 150.000 kr. og hægt er að kaupa sig aftur […]
Smábokka lauk núna í kvöld með sigri Halldórs Más Sverrissonar en hann hefur áður unnið bæði Íslandsmeistaratitilinn í PLO árið 2018 og í net-PLO árið 2021. Halldór kom inn á dag 2 með fimmfaldan upphafsstakk og sigldi stakknum hægt og bítandi í höfn. Í öðru sæti varð Steingrímur Þorsteinsson og í því þriðja Árni Gunnarsson. […]
Laugavegur 53B
101 Reykjavík
560807-0150
Félagasamtök
pokersamband@pokersamband.is