Staðan eftir dag 1 á Stórbokka

Þátttaka á Stórbokka var sú mesta í áratug en alls voru þátttakendur 46 talsins og endurkaup 15, þannig að heildarfjöldi þátttökugjalda í mótið var 61. Þetta er svipuð þátttaka og var fyrstu tvö árin en þátttaka í mótinu var mjög dræm á árunum þar á eftir en hefur farið vaxandi jafnt og þétt eftir að mótið var endurvakið eftir Covid árin.

Verðlaunapotturinn endaði í 7.575.000 sem verður skipt á milli 9 efstu og kostnaðarhlutfall mótsins er 12,9%.

Leikið var til miðnættis á degi 1 og af þeim 46 sem hófu leik fara 15 yfir á dag 2. Stakkstærðir þeirra sem komast á dag 2 eru:

Birkir Blær Laufdal Kristinsson2.510.000
Einar Þór Einarsson1.775.000
Friðrik Falkner1.250.000
Ernestas Trofimovas1.190.000
Sigurður Þengilsson880.000
Tomasz Janusz Mroz805.000
Johan Rolfsson635.000
Árni Gunnarsson605.000
Daniel Jacobsen490.000
Davíð Þór Rúnarsson440.000
Vytatutas Rubezius440.000
Halldór Már Sverrisson375.000
Kristján Loftur Helgason285.000
Hafþór Sigmundsson270.000
Axel Hreinn Hilmisson195.000

Leikur hefst að nýju kl. 14:00 á morgun, sunnudag.

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply