Tómas Örnólfsson er sigurvegari í Bræðingi 2026

Bræðingur var haldinn í þriðja sinn nú í vikunni. Mótið hófst á Coolbet sl. sunnudag þar sem leikið var niður í 9 manna lokaborð og hélt mótið síðan áfram í sal Reykjavík Royale í gærkvöldi þar sem lokaborðið var leikið til enda. Það var Tómas Örnólfsson (Tomasoo1) sem stóð uppi sem sigurvegari eftir dágóða heads-up viðureign við Olgeir Karvelsson.

Tómas kom inn á lokaborðið með gott chip-lead og í heads-up viðureigninni skiptust þeir Olgeir á að dobbla hvor annan upp nokkrum sinnum þar til Tómas á endanum hafði betur.

Alls tóku 61 þátt í mótinu í þetta sinn og endurkaup voru 45 talsins. Það voru 700þús. kr. sem enduðu í prizepoolinu en þess má geta að í þessu móti tekur PSÍ ekkert fyrir að halda mótið og Coolbet tekur aðeins 9% fyrir að halda mótið fyrir okkur þrátt fyrir ærna fyrirhöfn á báðum vígstöðvum þar sem um mjög sérstakt setup er að ræða.

Verðlaunaféð skiptist á milli þeirra 9 sem komust á lokaborðið með eftirfarandi hætti:

  1. Tómas Örnólfsson – 200.000
  2. Olgeir Karvelsson – 140.000
  3. Andrés Róbert Vilhjálmsson – 95.000
  4. Erika Avetisian – 75.000
  5. Daniel Jacobsen – 55.000
  6. Jón Óskar Agnarsson – 45.000
  7. Daníel Már Pálsson – 35.000
  8. Birkir Viðar Haraldsson – 30.000
  9. Eyþór Sigurðsson – 25.000

Eitt af því sem gerir þetta mót sérlega skemmtilegt er að það dregur fram í dagsljósið ný andlit sem hafa ekki sést á öðrum mótum og á þessu móti komust fjórir leikmenn á lokaborðið sem ekki höfðu tekið þátt í neinum mótum á vegum PSÍ áður.

Það var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ, sem var mótsstjóri á lokaborðinu og hafði hann einnig veg og vanda að því að skipuleggja mótið.

Við óskum Tómasi til hamingju með sigurinn og þökkum félagsmönnum fyrir stórskemmtilegt mót og Coolbet sérstaklega fyrir að standa í þessu með okkur.