Birkir vinnur Stórbokka 2026

Stórbokka 2026 lauk kl. 19:47 á sunnudagskvöld og það var Birkir Blær Laufdal Kristinsson sem vann sigur á Stórbokkanum í ár eftir heads-up viðureign við Friðrik Falkner sem varð í öðru sæti. Birkir kom inn á dag 2 með verulegt chip-lead og náði að halda því jafnt og þétt í gegnum allan dag 2. Þess má geta að Birkir vann miða í mótið á Coolbet fyrir litlar €50.
Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið á tveimur dögum en hingað til hefur mótið verið haldið á einum degi og hefur jafnan staðið langt fram á nótt. Leikið var til miðnættis á laugardegi og stóðu þá 15 eftir og hófst leikur aftur kl. 14:00 á sunnudeginum.
Alls tóku 46 þátt í mótinu í ár og er þetta fjölmennasta Stórbokka mótið síðan 2016. Tölur eru eitthvað aðeins á reiki um fjöldann í fyrstu tveimur mótunum 2015 og 2016 en síðan varð veruleg fækkun á árunum á eftir og á Covid árunum tveimur var mótið fellt niður. Síðan það var endurvakið árið 2022 hefur þátttaka aukist jafnt og þétt og erum við núna búin að jafna þátttökuna sem var á fyrstu tveimur árunum.
Endurkaup voru 15 talsins þannig að heildarfjöldi skráninga (entries) í mótið var 61. Verðlaunaféð endaði í 7.575.000 og kostnaðarhlutfall 12,9%. Verðlaunaféð skiptist á þá 9 sem komust á lokaborðið en þeir sem unnu til verðlauna voru:
- Birkir Blær Laufdal Kristinsson 2.130.000
- Friðrik Falkner 1.525.000
- Kristján Loftur Helgason 1.070.000
- Ernestas Trofimovas 820.000
- Árni Gunnarsson 620.000
- Tomasz Janusz Mroz 470.000
- Einar Þór Einarsson 370.000
- Davíð Þór Rúnarsson 305.000
- Sigurður Þengilsson 265.000


Mótið var haldið í sal Reykjavík Royale sem hluti af póker hátíðinni Midnight Sun Poker 2026 og kunnum við RR bestu þakkir fyrir að hýsa mótið og Coolbet fyrir að keyra online undanmót vikulega í tvo mánuði fyrir mótið en þátttaka í þeim var alger lykilþáttur í því hversu vel tókst til með mótið. Í matarhléi var boðið upp á steikarhlaðborð sem Atli Freyr kokkaði ofan í okkur og var ekki annað að heyra en að það hafi fallið í mjög góðan jarðveg.
Það voru þau Alexander, Dísa, Bart. Hjalti, Rannveig, Filip, Bjarni Veigar, Maryna og þrír erlendir gestir Anna, Iryna og Tetiana sem sáu um gjafarastörfin af sinni einstöku fagmennsku. Það var síðan Jón Ingi, gjaldkeri PSÍ, sem bar hitann og þungann af undirbúningi og skipulagi mótsins og Kai Fletcher sem sá um mótsstjórn.
Við þökkum öllum sem komu að Stórbokka þetta árið, starfsfólki, þátttakendum og gestgjöfum fyrir að gera gott mót með okkur og sjáumst vonandi sem flest á næsta móti!
Einnig fóru fram tvö hliðarmót samhliða Stórbokkanum. Á laugardagskvöldið fór fram 30K re-entry mót undir yfirskriftinni “Saturday Showdown” eftir að matarhléi lauk í Stórbokka. 23 entry voru í mótið og verðlaunafé upp 590þús skiptist á milli eftirfarandi þriggja leikmanna:
- Sigurjón Þórðarsson 270.000
- Fabian Bartuschk 190.000
- Kristinn Pétursson 130.000
Á sunnudeginum fór fram 40K re-entry mót samhliða lokaborðinu á Stórbokka. Þar voru 13 entry og eftirfarandi þrír skiptu með sér 440þús í verðlaunafé:
- Jón Ingi Thorvaldsson 210.000
- Eiríkur Garðar Einarsson 140.000
- Adrian Bloechlinger 90.000


Við fengum ljósmyndara í heimsókn nokkrum sinnum á meðan hátíðinni stóð og hér má sjá nokkrar svipmyndir frá mótum vikunnar:
































Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!