ÍM 2026 – staðan eftir dag 2
Leik á degi 2 lauk fimm mínútum fyrir miðnætti og stóðu þá 9 þátttakendur eftir sem hefja leik á degi 3 þar sem leikið verður til þrautar. Það er Wilhelm Norðfjörð sem er með chip-lead í upphafi dags 3 en staða þeirra 9 sem skipa lokaborðið er eftirfarandi:
- Wilhelm Norðfjörð – 1.515.000
- Fannar Ríkarðsson – 1.167.000
- Branimir Jovanovic – 1.001.000
- Andri Freyr Gunnarsson Bender – 844.000
- Tristan Ingi Ragnarsson – 801.000
- Alexandru Marian Florea – 789.000
- Steinar Geir Ólafsson – 336.000
- Brynjar Valdimarsson – 262.000
- Bjarni Fannar Bjarnason – 237.000
Leikur hefst að nýju á degi 3 kl. 14:00 á sunnudeginum 8.nóv. og verður þá haldið áfram þar sem frá var horfið á leveli 19 þar sem nokkrar mínútur voru eftir og blindar eru 8k/16k/16k. Næsta level er síðan 10k/20k/20k.
Samhliða lokaborðinu verður einnig leikið hið sígilda 30K Re-entry hliðarmót. Þátttökugjald er 30.000, upphafsstakkur 50.000, 20 mín. level og late-reg í 8 level. Skráning fer fram á staðnum og greiðsla með korti í posa.
Á degi 2 á ÍM fór einnig fram mjög líflegt hliðarmót með 20k þátttökugjaldi og ótakmörkuðu re-entry. Þar tóku 38 þátt og voru endurkaup 32 talsins og endaði verðlaunafé í 1.200.000 sem skiptist á milli 9 efstu.
Það voru þeir Ívar Þórðarson og Ívar Guðmundsson sem enduðu heads-up og á endanum hafði Ívar Þórðarson betur. Verðlaunafé fyrir fyrsta sæti var 340.000 og 240.000 fyrir annað sæti en efstu tveir sömdu um að 310.000 færu í fyrsta sætið. Verðlaunaféð skiptist með eftirfarandi hætti á milli þeirra sem komust á lokaborðið:
- Ívar Þórðarsson – 310.000
- Ívar Guðmundsson – 270.000
- Þóroddur Eiríksson – 165.000
- Steinn Du – 130.000
- Matte Bjarni – 100.000
- Muammer Örcan – 75.000
- Halldór Már – 60.000
- Már Wardum – 50.000
- Hreiðar Geir Jörundsson – 40.000




Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!