Hafþór sigurvegari á stærsta PLO Íslandsmóti frá upphafi
Íslandsmótinu í Pot-Limit-Omaha lauk klukkan hálfeitt í gærkvöldi með sigri Hafþórs Sigmundssonar eftir langt einvígi við Brynjar Bjarkason sem varð í öðru sæti. Þeir voru nokkuð jafnir lengst af en eftir u.þ.b. klukkutíma heads-up leik tapaði Brynjar stórum potti og sat eftir með rétt rúmlega hálfan bb. Hann náði síðan að tvöfalda sig nokkrum sinnum og náði sér úr 25k upp í rúmlega 400k og var þá aftur kominn með um helming af meðalstakk. En þá enduðu þeir enn og aftur all-in í næstu hönd. Brynjar floppaði topp pari og hefði jafnað Hafþór ef það hefði haldið, en svo bakkaði Hafþór inn í fullt hús og hafði sigur.
Það má segja að hér hafi tveir af okkar allra bestu leikmönnum verið að kljást um PLO titilinn en Hafþór varð Íslandsmeistari í póker árið 2024, hann vann Stórbokka árið 2018 og ÍM í net-PLO árið 2023. Brynjar á ekki síðri feril að baki á mótum á vegum PSÍ. Hann var hér nálægt því að vinna PLO titilinn annað árið í röð, hann hefur tvisvar unnið ÍM í net-póker auk þess að vinna tvisvar sigur í Coolbet Bikarnum.
Mótið hófst klukkan 13:00 og markaði upphaf Íslandsmótavikunnar í þetta sinn sem fer í heild sinni fram í glæsilegum salarkynnum Hótel Borgar. Þátttakendur voru 33 talsins og keyptu 12 þeirra sig inn aftur en eitt re-entry er leyft í þessu móti. Alls voru því 45 entry í mótið og er þetta langfjölmennasta PLO mót sem PSÍ hefur haldið.
Heildar verðlaunafé var 1.470.000 en þetta er í fyrsta skipti sem þetta mót nær yfir milljón í verðlaunafé. Kostnaðarhlutfall var 18% og skiptist verðlaunaféð á milli 7 efstu með eftirfarandi hætti:
- Hafþór Sigmundsson – 520.000
- Brynjar Bjarkason – 340.000
- Pétur Dan Markússon – 210.000
- Vytatutas Rubezius – 140.000
- Steinar Edduson – 110000
- Hafsteinn Ingimundarson – 90.000
- Þröstur Ólafsson – 60.000
Mótsstjóri var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ og til aðstoðar var Snorri Már Skúlason, ritari PSÍ. Í störfum gjafara var úrvalslið Omaha gjafara, þau Alexander, Rannveig, Berglaug, Hanna, Bart og Maryna.
Við óskum Hafþóri til hamingju með sigurinn og öllum verðlaunahöfum einnig til hamingju með árangurinn. Við þökkum Borg Restaurant kærlega fyrir að útvega okkur þessa frábæru aðstöðu fyrir mótið og Coolbet fyrir vel heppnuð undanmót en þetta tvennt átti lykilþátt í að mótið varð jafn fjölmennt og raun bar vitni. Stjórn PSÍ þakkar síðan öllum sem tóku þátt í mótinu og þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd mótsins fyrir að gera gott mót!
Íslandsmótsvikan er rétt að byrja og við sjáumst vonandi sem flest kvöld vikunnar á Hótel Borg!!



