Lög Pókersambands Íslands
Pókersamband Íslands
Pókersamband Íslands
1. kafli. Nafn og tilgangur.
1. grein.
Nafn sambandsins er PÓKERSAMBAND ÍSLANDS, skammstafað PSÍ. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein.
Tilgangur sambandsins er:
a) Að vera æðsti aðili á landinu um málefni póker íþróttarinnar, standa að mótahaldi og stuðla að útbreiðslu og kynningu á mótapóker og eflingu póker sem íþróttar.
b) Að halda árlega Íslandsmót í póker þar sem öllum félagsmönnum innan Pókersambandsins skal heimil þátttaka. Á Íslandsmóti skal keppa í einmenningskeppni í No Limit Texas Hold’em póker, svo og öðrum greinum sem stjórn ákveður hverju sinni.
c) Að sjá um að alþjóðlegum hefðum og venjum í póker sé fylgt í keppni sambandsfélaganna og spilarar sýni háttvísi í samskiptum sínum.
d) Að vinna að sem bestu samstarfi milli sambandsfélaga og skera endanlega úr deilumálum, sem kunna að rísa milli þeirra eða einstakra félagsmanna.
e) Að stuðla að fræðslu um ábyrga spilamennsku og halda úti ráðgjöf til spilafíkla.
f) Að stuðla að því að áhugamannapóker verði ótvírætt löglegur á Íslandi. Ekki er um að ræða atvinnupóker eða rekstur pókerspilavíta.
3. kafli. Stjórn og ársþing.
3. grein.
Á milli ársþinga er æðsta vald í málefnum sambandsins í höndum stjórnar, sem skipuð skal 3 mönnum og tveimur varamönnum, sem kosnir eru á ársþingi.
Formann og gjaldkera skal kjósa sérstaklega til tveggja ára í senn og aðra stjórnarmenn til eins árs. Kjósa skal formann á árum sem enda á sléttri tölu og gjaldkera á árum sem enda á oddatölu.
Stjórnin skal á sínum fyrsta fundi skipta með sér verkum og skal skipa í eftirtalin störf innan stjórnarinnar: Varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Stjórninni er heimilt að mynda þriggja manna framkvæmdaráð innan stjórnarinnar, sem annast daglega stjórn sambandsins í umboði og eftir framkvæmdaáætlun stjórnarinnar. Stjórninni skal heimilt að ráða framkvæmdastjóra sem annist daglegan rekstur eða framkvæmd ákveðinna viðburða eða móta í umboði stjórnar.
Stjórnin skal framfylgja ályktunum og ákvörðunum ársþings og vera félögum til aðstoðar um málefni er varða póker íþróttina. Fjárhagslegar skuldbindingar skulu vera háðar samþykki stjórnar.
4. grein.
Á aðalfundi eru kjörnar tvær nefndir, mótanefnd og laga- og leikreglnanefnd. Skal hvor þessara nefnda vera skipuð 3-5 mönnum. Nefndirnar skulu vera sem mest sjálfstæðar í störfum sínum. Í ákvörðunum sínum skulu þær þó vera bundnar af samþykktum ársþings og stjórnar annars vegar og þeim reglum og reglugerðum sem samþykktar hafa verið auk þess að bera kostnaðaráætlanir og fjárhagslegar skuldbindingar undir stjórn. Formenn fastanefnda skulu flytja skýrslu um störf nefndanna á ársþingi PSÍ.
Mótanefnd skal hafa yfirumsjón með öllum mótum sem haldin eru á vegum PSÍ og hefur æðsta vald í mótum á vegum PSÍ. Hægt er að áfrýja úrskurðum mótanefndar er varða lög og keppnisreglur til laga- og leikreglnanefndar. Verkefni laga- og leikreglnanefndar er að ákveða eftir hvaða reglum er keppt og fjalla um og ákvarða hvort farið hafi verið eftir keppnisreglum. Laga og leikreglnanefnd skal hafa yfirumsjón með öllum breytingum á keppnisreglum. Telji hún ástæðu til breytinga á lögum eða reglugerðum leggur hún fram tillögur sínar fyrir stjórn PSÍ til framlagningar á ársþingi eða til ákvörðunar ef um er að ræða breytingar á reglugerð sem sett er af stjórn. Við meðferð mála hjá nefndum sambandsins skal eftir því sem kostur er, taka mið af almennum stjórnsýslureglum og gæta þess í hvívetna að mál, sem komi til kasta þeirra, hljóti réttláta og hlutlausa umfjöllun. Hver nefnd skal því færa til bókar fundi sína og þá úrskurði sem hún kann að kveða upp.
Æskilegt er að amk. einn stjórnarmaður sé þátttakandi í hverri nefnd. Ef ekki tekst að manna nefndir á ársþingi þá hefur stjórn PSÍ heimild til þess að skipa í nefndir eftir að stjórn tekur til starfa.
5. grein.
Ársþing fer með æðsta vald í málefnum sambandsins og skal haldið árlega í janúar eða febrúar ár hvert. Stjórnin boðar til þess með þriggja vikna fyrirvara með tölvupósti til skráðra félagsmanna og/eða á samfélagsmiðlum eða öðrum sambærilegum hætti. Dagskrá skal vera samkvæmt 6. grein nema annað sé ákveðið af stjórn og skal þá breytt dagskrá send út með einnar viku fyrirvara. Óski félagsmenn eða fulltrúar aðildarfélaga eftir því að bera fram tillögur um lagabreytingar á þinginu, skulu þær tillögur berast til stjórnar eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund og skal þeirra getið í útsendri dagskrá. Rétt til setu á þinginu eiga allir fullgildir félagsmenn PSÍ skv 9. grein. Hver félagsmaður hefur eitt atkvæði, en getur þó farið með umboð fyrir einn annan félaga. Stjórninni er heimilt að bjóða gestum til þingsins sem áheyrnarfulltrúum.
6. grein.
Á ársþingi skulu eftirtalin mál tekin fyrir:
7. grein.
Aukaþing má halda, ef meirihluti stjórnar telur það nauðsynlegt. Stjórn er skylt að boða til aukaþings, ef þess er óskað af félögum, sem í eru 1/3 hluti allra félagsmanna. Til aukaþings skal boða með þriggja vikna fyrirvara.
8. grein.
Reiknings- og starfsár sambandsins er frá 1. janúar til 31. desember. Gjaldkeri sér til þess að bókhald sé fært og ársreikningur sé gerður í lok reikningsárs. Ársreikningi sambandsins skal fylgja eignaskrá.
Tveir skoðunarmenn reikninga, sem kosnir eru til tveggja ára í senn á ársþingi, skulu yfirfara reikninga sambandsins. Athugasemdir sínar ef einhverjar eru, skulu þeir gera skriflega og senda stjórn sem skal leggja þær fyrir þingið. Endurskoðun skal lokið 10 dögum fyrir ársþing.
4. kafli. Ýmis aðildarákvæði.
9. grein.
Til að teljast fullgildur meðlimur skal félagi hafa greitt árgjald til PSÍ á yfirstandandi ári. Þeir hafa einnig atkvæðisrétt á ársþingi sem greitt hafa árgjald á undangengnu ári. Miða skal árgjöld við reikningsár sambandsins.
Stjórn PSÍ áskilur sér rétt til þess að hafna aðild félaga sem á einhvern hátt hafa orðið uppvísir að agabrotum eða ósæmilegri hegðun á mótum á vegum PSÍ eða hjá aðildarfélögum/félögum sem PSÍ á í samstarfi við.
Það er skilyrði fyrir þátttöku í mótum á vegum PSÍ, að viðkomandi félagi hafi greitt árgjald sitt til Pókersambandsins og hafi náð 18 ára aldri. Undanþágu frá aldurstakmarki má veita ef forráðamenn umsækjanda veita skriflegt samþykki fyrir því.
Félagsmenn skulu tilkynna stjórn um úrsögn úr PSÍ skriflega með tölvupósti eða öðrum sambærilegum hætti. Stjórnin ákveður þátttökugjald og verðlaun í mótum sínum. Þátttökugjöld og aðgangseyrir að mótum sambandsins renna til PSÍ.
5. kafli. Innlend og erlend mót.
10. grein.
Stjórnin sér um að Íslandsmót og önnur meistaramót séu haldin árlega skv. reglugerð um mótahald. Stjórn skal sjá til þess að hverju sinni sé í gildi reglugerð um mótahald á vegum PSÍ. Reglugerðir um mót skulu kynntar á ársþingi en til breytinga á þeim nægir einfaldur meirihluti stjórnarfundar. Félagsmenn geta einnig borið upp tillögur um breytingar eða viðbætur við reglugerðir á ársþingi og taka slíkar breytingar þá þegar gildi ef einfaldur meirihluti ársþings samþykkir breytingarnar. Stjórn skal kynna allar breytingar á reglugerðum á vef og/eða samfélagsmiðlum.
7. kafli. Úrskurðarvald í félagslegum þrætum.
11. grein.
Einstökum félagsmönnum er skylt að hlíta úrskurðum og ákvörðunum stjórnar og nefnda, innan þess ramma sem lög sambandsins mæla fyrir um á hverjum tíma. Stjórnin getur vikið brotlegum félaga úr sambandinu ef fyrir liggur rökstuðningur fyrir brottvikningunni, en leggja skal málið fyrir næsta ársþing til staðfestingar.
8. kafli. Lagabreytingar og slit sambandsins.
12. grein.
Lögum þessum verður ekki breytt nema á ársþingi sambandsins sem boðað hefur verið til á sama hátt og reglulegs sambandsþings, enda hafi lagabreytinga verið getið í dagskrá þingsins og þær hlotið 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Breytingar á lögum þessum taka þegar gildi.
13. grein.
Tillaga um að leggja sambandið niður þarf að berast stjórn a.m.k. 3 vikum fyrir aðalfund og skal tillögunnar getið í fundarboði. Tillaga um að leggja sambandið niður telst aðeins samþykkt ef 3/4 atkvæðabærra fundarmana samþykkja tillöguna. Verði slík tillaga samþykkt skal boða til aukaaðalfundar innan 4 vikna til að staðfesta tillöguna og þarf jafnframt 3/4 atkvæðabærra fundarmanna þar til þess að staðfesta samþykki hennar. Verði sambandið lagt niður skulu eignir þess renna til verkefnisins “Frú Ragnheiður – Skaðaminnkun” á vegum Rauða Krossins í Reykjavík.
Síðast breytt á ársþingi PSÍ, 26. janúar 2020.