Íslandsmótið í póker
Íslandsmótið hefur verið hápunktur í starfsemi hvers árs hjá PSÍ frá upphafi en það var fyrst haldið árið 2009. Fjöldi þátttakenda fór yfir 200 þegar póker átti sem mestum vinsældum að fagna en siðan dró nokkuð úr þátttöku á næstu árum á eftir. Fjöldi þátttakenda fór lægst í 78 árið 2017 en hefur aukist jafnt og þétt síðan og komst aftur yfir 100 árið 2019. Þátttökugjald hefur verið á bilinu 40000-70000 kr. Mótið hefur ýmist verið haldið á 3 eða 4 dögum og var það stundum haldið yfir tvær helgar en síðustu 2 ár hefur það verið klárað á einni helgi, föstudag til sunnudags þar sem lokaborð hefur verið leikið á sunnudegi.
Hér má sjá yfirlit yfir mótin frá upphafi og Íslandsmeistara:
Ár | Fjöldi þáttt. | Staðsetning | Buy-in | Íslandsmeistari |
2009 | 191 | Hilton Nordica | 40000 | Axel Einarsson |
2010 | 214 | Hótel Örk | 60000 | Stefán Arngrímsson |
2011 | 201 | Hótel Örk | 60000 | Örvar Bjartmarsson |
2012 | 139 | Hótel Örk | 67000 | Aníka Maí Jóhannsdóttir |
2013 | 152 | Loftleiðir | 67000 | Heimir Guðbergsson (Í 1.sæti var Adrian Milroy) |
2014 | 142 | Borgarnes | 55000 | Eysteinn Einarsson |
2015 | 134 | Borgarnes | 60000 | Aðalsteinn Pétur Karlsson |
2016 | ? | Kópavogur (Lionsklúbburinn Lundur) | 67000 | Guðmundur Vignir Jack |
2017 | 78 | Borgarnes | 70000 | Ísak Atli Finnbogason |
2018 | 87 | Hótel Vellir | 60000 | Ívar Örn Böðvarsson |
2019 | 119 | Hótel Vellir | 60000 | Örnólfur Smári Ingason |