Brynjar Bjarkason (makk) vinnur enn einn Coolbet bikarinn

Lokaborð Coolbet bikarsins 2026 fór fram laugardaginn 4.mars og lauk honum með sigri Brynjars Bjarkasonar (makk). Þetta er í annað sinn sem hann vinnur sigur í þessari mótaröð en hann vann sigur í fyrsta Coolbet bikarnum sem haldinn var árið 2020.

Þar með er orðið óhætt að segja að hann sé orðinn sigursælasti net-póker spilarinn í sögu PSÍ, en hann hefur einnig tvisvar unnið ÍM í net-póker, og að auki tók hann Íslandsmeistaratitilinn í PLO árið 2025.

Við óskum Brynjari til hamingju með enn einn sigurinn og hina glæsilegu vinninga sem hann sópaði til sín. En hann fær að launum €1600 pakka á Coolbet Open sem fram fer í Tallinn í haust, auk €600 í TM á Coolbet og svo fær hann verðlaunagrip frá PSÍ sem afhentur verður á Midnight Sun Poker hátíðinni sem fram fer í maí.

Heildarúrstlit á lokaborðinu urðu þessi:

SætiNafnCoolbet IDVerðlaun
1Brynjar Bjarkasonmakk€1600 pakki á Coolbet Open + €600 TM
2Viktor Helgi BenediktssonBanco€1600 pakki á Coolbet Open + €300 TM
3Kristján Loftur HelgasonBlakaldur€1600 pakki á Coolbet Open
4Örn ÁrnasonOrninn€550 pakki á Coolbet Open
5Atli ÞrastarsonWhiskyMaster€550 pakki á Coolbet Open
6Alexandru Marian FloreaHowaboutaHug€550 pakki á Coolbet Open
7Kristinn PéturssonHunterinn€550 pakki á Coolbet Open
8Anton Jarl Jóhannsson BachmannChillDudeChecks€550 pakki á Coolbet Open
9Sigurður ÞengilssonEldsmidur€550 pakki á Coolbet Open

Við þökkum félagsmönnum fyrir einstaklega vel heppnaða mótaröð að þessu sinni. Það var metþátttaka í þetta sinn. Alls tóku 100 einhvern þátt í mótunum, 80 tóku þátt í stigakeppninni og heildarverðlaunafé var tvöfalt hærra en í fyrra.

Og ekki síst þá þökkum við Coolbet kærlega fyrir að standa þétt við bakið á okkur með þessa farsælu mótaröð enn eitt árið og fyrir hina glæsilegu aukavinninga, sem voru tvöfalt hærri nú en nokkru sinni fyrr!

Svo sjáumst við öll á Coolbet Open 2026 í Tallinn í haust! 

Lokastöðuna í stigakeppni Coolbet bikarsins má finna hér.

Midnight Sun Poker 2026

(For information in English, click here)

Annað árið í röð blásum við til pókerveislunnar Midnight Sun Poker 2026. Þar sláum við saman þremur mótum sem hafa verið á mótadagskránni, Bræðingi, Smábokka og Stórbokka og gerum úr því viku pókerhátíð með nokkrum hliðarmótum.

Bræðingur var endurvakinn í fyrra eftir nokkurra ára hlé en í því móti bræðum við saman net-póker og live póker í skemmtilegri samsetningu sem hefst á Coolbet sunnudaginn 10.maí og lýkur svo með live lokaborði þriðjudaginn 12.maí.

Á miðvikudeginum verður veglegt 40k mystery bounty mót þar sem Coolbet og PSÍ gefa glæsilega aukavinninga. Coolbet gefur €1600 pakka á Coolbet Open og PSÍ gefur aukamiða á Stórbokka og Smábokka.

Fimmtudaginn 14.maí (Uppstigningardag) kl. 14:00 hefst svo Smábokki með aðeins breyttu sniði þar sem leikið verður niður á lokaborð á degi 1 og dagur 2 hefst síðan kl. 18:00 á föstudeginum.

Hátíðinni lýkur síðan með Stórbokka sem verður hápunktur vikunnar. Stórbokki verður einnig með aðeins breyttu sniði en hann verður nú í fyrsta sinn leikinn á tveimur dögum. Leikið verður niður á lokaborð á laugardeginum og leikur heldur síðan áfram á sunnudegi þar sem mótið verður klárað. Þátttökugjaldið er 150.000 kr. eins og fyrri ár og hægt að kaupa sig aftur inn ótakmarkað fyrir 120.000 kr. Innifalið í Stórbokka er vegleg máltíð í hléi.

Sjá allar nánari upplýsingar á upplýsingavef hátíðarinnar (á ensku).

Undanmót hefjast á skírdag, fimmtudaginn 2.apríl á Coolbet, einnig verða undanmót á föstudaginn langa kl. 20:00 og síðan alla sunnudaga frá og með páskadegi og fram til 10.maí.