Íslandsmótið í net-póker 2026
Íslandsmótið í net-póker fer fram næstu tvo sunnudaga á Coolbet. ÍM í net-PLO fer fram sunnudaginn 22.nóvember og Íslandsmótið í net-póker (NLH) fer fram sunnudaginn 29.nóvember. Bæði mótin hefjast kl 18:00.
Þátttökugjald er €100 á ÍM í net-PLO og boðið er upp á tvö re-entry. Íslandsmótið í net-póker (NLH) er hins vegar freeze-out með €200 þátttökugjald.
Undanmót eru í fullum gangi fimmtudaga og sunnudaga kl. 20:00 á Coolbet. PLO mótin eru með €10 þátttökugjaldi og NLH mótin €20 og alltaf með ótakmörkuðu re-entry.
Vinsamlegast athugið eftirfarandi:
- Aðild að PSÍ er skilyrði fyrir þátttöku á ÍM í net-póker en allir geta tekið þátt í undanmótum.
- Til að tryggja þátttökurétt þarf að ganga frá aðild í síðasta lagi sólarhring fyrir hvorn keppnisdag.
- Þegar gengið er frá aðild að PSÍ þarf að passa að Coolbet poker ID komi fram í skráningu. Ef það gleymist má senda Coolbet poker ID í tölvupósti á [email protected]
- PSÍ og Coolbet áskilja sér rétt til þess að birta raunveruleg nöfn vinningshafa.
Eins og venjulega er gengið frá aðild að PSÍ á www.pokersamband.is/shop
Undanmót fyrir ÍM í net-póker:
- Fim. 12.nóv. kl. 20:00 – €20 re-entry – 2 miðar tryggðir!
- Sun. 15.nóv. kl. 20:00 – €20 re-entry – 6 miðar tryggðir!
- Fim. 19.nóv. kl. 20:00 – €20 re-entry – 2 miðar tryggðir!
- Sun. 22.nóv. kl. 20:00 – €20 re-entry – 10 miðar tryggðir!
- Fim. 26.nóv. kl. 20:00 – €20 re-entry – 4 miðar tryggðir!
Undanmót fyrir ÍM í net-PLO:
- Fim. 12.nóv. kl. 20:00 – €10 re-entry – 2 miðar tryggðir!
- Sun. 15.nóv. kl. 20:00 – €10 re-entry – 4 miðar tryggðir!
- Fim. 19.nóv. kl. 20:00 – €10 re-entry – 2 miðar tryggðir!



Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!