• Shopping Cart Shopping Cart
    0Shopping Cart
Pókersamband Íslands
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Mót
    • Mótadagskrá 2026
    • Mótadagskrá 2025
    • Íslandsmót
    • Stórbokki
    • Smábokki
    • Íslandsmót í net-póker
    • Bikarmót PSÍ
    • Bræðingur
    • PLO Íslandsmót
    • Coolbet Bikarinn 2026
  • Um PSÍ
    • Stjórn PSÍ
    • Lög sambandsins
    • Reglugerðir
    • Greiðslur til gjafara
    • Farsímareglur
    • Um ábyrgð og hegðun leikmanna
  • Hafa samband
  • Skráning!
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu

Tristan er Íslandsmeistari í póker 2026

09/11/2026/0 Comments/by Stjórn PSÍ

Íslandsmótinu í póker lauk kl. 22:30 í kvöld og var það Tristan Ingi Ragnarsson sem bar sigur úr býtum eftir ca. hálftíma heads-up viðureign við Alexandru Marian Florea. Í þriðja sæti varð Fannar Ríkharðsson. Lokaborðið hófst kl. 14 og komu leikmenn inn á lokaborðið með 48bb meðalstakk og spiluðu í meira en 3 klukkustundir áður en fyrsti maður féll úr leik og muna menn ekki eftir annarri eins tregðu í upphafi lokaborðs fyrr eða síðar. Einhvern hitti það þannig á að litlu stakkarnir tvöfölduðu sig hvað eftir annað og það var ekki fyrr en um hálfsex sem Branimir Jovanovic féll úr leik í 9. sæti.

Heildarfjöldi þátttakenda var 140 og tók 76 þátt í degi 1a og 64 á degi 1b og komust samtals 64 þeirra á dag 2. Á degi 2 var leikið frá kl. 13:00 og til kl. 23:55 en þá stóðu þeir 9 eftir sem mynduðu lokaborðið.

Magnús Valur Böðvarsson mætti á staðinn bæði á degi 2 og 3 og var með beina textalýsingu frá lokaborðinu sem finna má hér.

(Lokaborðið á ÍM í póker 2026. Frá vinstri: Andri Freyr Gunnarsson Bender, Steinar Geir Ólafsson, Fannar Ríkarðsson, Wilhelm Norðfjörð, Bjarni Fannar Bjarnason, Brynjar Valdimarsson, Alexandru Marian Florea, Tristan Ingi Ragnarsson, Branimir Jovanovic)

Heildarverðlaunafé var 9.070.000 og skiptist það á milli 20 efstu sæta. Kostnaðarhlutfall mótsins var fest í 19% hámarki en heildarkostnaður var umfram það enda var umtalsvert meira lagt í framkvæmd mótsins að þessu sinni og mótshaldið því niðurgreitt að hluta.

Eftirfarandi skiptu með sér verðlaunafénu og Guðjón Þ. Gíslason sem endaði í 21. sæti (búbblusætinu) fékk í sárabætur miða á ÍM 2027:

  1. Tristan Ingi Ragnarsson, 1.650.000
  2. Alexandru Marian Florea, 1.220.000
  3. Fannar Ríkarðsson, 930.000
  4. Bjarni Fannar Bjarnason, 730.000
  5. Steinar Geir Ólafsson, 580.000
  6. Wilhelm Norðfjörð, 510.000
  7. Andri Freyr Gunnarsson Bender, 440.000
  8. Brynjar Valdimarsson, 390.000
  9. Branimir Jovanovic, 340.000
  10. Bjarni Daníel Ýmisson, 310.000
  11. Kuba Jakubowski, 280.000
  12. Elís Þór Sigurðsson, 250.000
  13. Arnþór Freyr Sigþórsson, 220.000
  14. Fionn Sherry, 200.000
  15. Joshua Theilemann, 180.000
  16. Logi Unnarson Jónsson, 180.000
  17. Atli Þrastarson, 170.000
  18. Dominykas Chrypa, 170.000
  19. Gunnar Árnason, 160.000
  20. Korneliusz Jelinski, 160.000
  21. Guðjón Þ Gíslason, frímiði á ÍM 2027

Við þökkum Borg Restaurant kærlega fyrir þá frábæru aðstöðu sem við höfðum til afnota alla vikuna fyrir bæði Íslandsmótin, hliðarmótin og undanmót. Einnig þökkum við Coolbet og Reykjavík Royale fyrir samstarfið við framkvæmd mótsins. Undanmót á Coolbet voru klárlega lykilatriði í góðri þátttöku í ár og einnig undanmótin sem Hugaríþróttafélagið og Reykjavík Royale héldu og kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir. Heildarfjöldi miða úr undanmótum var að þessu sinni 104 og er það mun meiri fjöldi en undanfarin ár.

Samhliða lokaborðinu var leikið 30K re-entry hliðarmót þar sem 21 tóku þátt og voru entry í mótið samtals 28. Verðlaunafé endaði í 714.000 sem skiptist á milli 5 efstu sæta. Það var Edoardo Mancinelli frá Ítalíu sem bar sigur úr býtum og skiptist verðlaunaféð með eftirfarandi hætti:

  1. Edoardo Mancinelli, 285.000
  2. Kristinn Pétursson, 180.000
  3. Trausti Pálsson, 115.000
  4. Baldvin Már Borgarsson, 80.000
  5. Árni Gunnarsson, 55.000

Edoardo er í hópi svokallaðra “flaghunters” sem hafa það að markmiði að vinna til verðlauna í pókermótum í sem flestum löndum og bæta þar með einu flaggi í hvert sinn á prófíl sinn á Hendon Mob. Nokkrir úr þeim hópi hafa heimsótt okkur á undanförnum tveimur árum og hefur flestum þeirra tekist að bæta íslenska fánanum í safnið.

Mótsstjórar voru þeir Jón Ingi Þorvaldsson og Steinar Snær Sævarsson og production manager var Snorri Már Skúlason. Í störfum gjafara var úrvalslið íslenskra gjafara, þau Alexander, Rannveig, Berglaug, Erika, Dísa Lea og Fanney auk þess sem okkur barst liðsauki frá Úkraínu og Hvíta-Rússlandi, þau Iryna, Iryna, Yuliia, Inna og Pavlo. Við kunnum þeim öllum bestu þakkir fyrir frábær störf.

Að lokum minnum við á að mótadagskránni er ekki alveg lokið enn. Íslandsmótin í net-póker eru eftir en þau fara fram sunnudagana 22.nóv. og 29.nóv. Undanmót fyrir þau hefjast á Coolbet nk. fimmtudag.

Alla mótsdagana í ÍM vikunni voru dregnir út €200 miðar í upphafi hvers móts til að hvetja mótsgesti til að mæta tímanlega, og einnig voru dregnir út miðar í late-reg hléi í hliðarmótum. Þeir heppnu sem unnu €200 á ÍM í net-póker voru:

  • Grétar Már Steindórsson
  • Trausti Pálsson
  • Hannes Guðmundsson
  • Sigurður Þorgeirsson
  • Júlíus Pálsson
  • Kirstján Loftur Helgason
  • Kornelius Jelinski
  • Ásgrímur Guðnason

Við óskum Tristan til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og öðrum verðlaunahöfum helgarinnar til hamingju með árangurinn, þökkum félagsmönnum fyrir frábæra þátttöku og hlökkum til að sjá ykkur á næsta móti!

Share this entry
  • Share on Facebook
  • Share on X
  • Share on WhatsApp
  • Share on Pinterest
  • Share on LinkedIn
  • Share on Tumblr
  • Share on Vk
  • Share on Reddit
  • Share by Mail
https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2026/11/IMG_7141-scaled.jpeg 2163 2560 Stjórn PSÍ https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2019/10/PSI-New-logo-2019-300x145.png Stjórn PSÍ2026-11-09 01:56:252026-11-10 08:32:52Tristan er Íslandsmeistari í póker 2026
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply Cancel reply

You must be logged in to post a comment.

Nýlegar fréttir

  • Tristan er Íslandsmeistari í póker 2026 09/11/2026
  • ÍM 2026 – staðan eftir dag 2 08/11/2026
  • Bein lýsing frá degi 2 ÍM í póker 2026 07/11/2026
  • ÍM 2026 – Staðan eftir dag 2 07/11/2026
  • Met mæting á Coolbet Mystery Bounty 06/11/2026

Eldri fréttir

  • November 2026
  • September 2026
  • May 2026
  • April 2026
  • January 2026
  • November 2025
  • September 2025
  • August 2025
  • June 2025
  • May 2025
  • March 2025
  • January 2025
  • December 2024
  • November 2024
  • September 2024
  • August 2024
  • May 2024
  • April 2024
  • March 2024
  • January 2024
  • December 2023
  • November 2023
  • September 2023
  • August 2023
  • May 2023
  • April 2023
  • March 2023
  • February 2023
  • January 2023
  • December 2022
  • November 2022
  • September 2022
  • May 2022
  • April 2022
  • March 2022
  • February 2022
  • December 2021
  • November 2021
  • October 2021
  • September 2021
  • August 2021
  • June 2021
  • May 2021
  • April 2021
  • March 2021
  • February 2021
  • January 2021
  • December 2020
  • November 2020
  • October 2020
  • September 2020
  • August 2020
  • June 2020
  • April 2020
  • March 2020
  • February 2020
  • January 2020
  • December 2019
  • November 2019
  • October 2019
  • September 2019
  • August 2019
  • May 2019
  • April 2019
  • February 2019
  • January 2019
  • December 2018
  • October 2018
  • September 2018
  • August 2018
  • June 2018
  • May 2018
  • March 2018
  • October 2017
  • January 2017
  • March 2016
  • January 2016
  • October 2015
  • September 2015

Fréttaflokkar

  • Ársþing PSÍ
  • Fréttir
  • Greinar
  • Íslandsmót
  • Mót
  • Net-póker
  • PLO
  • Uncategorized

Pókersamband Íslands

Laugavegur 53B
101 Reykjavík
560807-0150
Félagasamtök
[email protected]

Allur réttur áskilinn - Pókersamband Íslands
  • Um PSÍ
  • Lög sambandsins
  • Fréttir
  • Skilmálar
  • Mótadagskrá 2025
Link to: ÍM 2026 – staðan eftir dag 2 Link to: ÍM 2026 – staðan eftir dag 2 ÍM 2026 – staðan eftir dag 2
Scroll to top Scroll to top Scroll to top