Einar Þór vinnur Mystery mótið
Við hófum Midnight Sun Poker hátíðina formlega með látum í á miðvikudagskvöld með Coolbet Mystery mótinu. 52 mættu til leiks og voru endurkaup 39 talsins og endaði aðal verðlaunapotturinn í 1.820.000 og Mystery verðlaunapotturinn í 1.274.000. Fjórir veglegir aukavinningar voru einnig í pottinum, €1600 og €550 pakkar á Coolbet Open í boði Coolbet og miðar á Stórbokka og Smábokka í boði PSÍ.
Það var Einar Þór Einarsson sem endaði í 1.sæti og Breki Konráðsson varð í 2.sæti. Hver og einn sem komst á lokaborðið fékk að draga einn af mystery vinningunum og auk þess skiptist verðlaunapotturinn á milli 9 efstu auk þess sem búbblusætið fékk miða á Smábokka í sárabætur:
- Einar Þór Einarsson – 515.000 (Miði á Stórbokka)
- Breki Konráðsson – 365.000 (150.000)
- Tomasz Janusz Mroz – 255.000 (274.000)
- Haraldur Pétursson – 195.000 (200.000)
- Bernharð Arinbjarnarson – 150.000 (€550 pakki á Coolbet Open)
- Árni Gunnarsson – 115.000 (100.000)
- Óli Björn Karlsson – 90.000 (300.000)
- Andri Már Ágústsson – 75.000 (250.000)
- Sigurður Baldvin Friðriksson – 65.000 (€1600 pakki á Coolbet Open)
- Steinar Edduson (Miði á Smábokka)
Mótsstjóri var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ og sá hann einnig um undirbúning og skipulag mótsins.
Við óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum félagsmönnum góða þátttöku og Reykjavík Royale fyrir frábæra aðstöðu fyrir mótið.




Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!