• Shopping Cart Shopping Cart
    0Shopping Cart
Pókersamband Íslands
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Mót
    • Mótadagskrá 2026
    • Mótadagskrá 2025
    • Íslandsmót
    • Stórbokki
    • Smábokki
    • Íslandsmót í net-póker
    • Bikarmót PSÍ
    • Bræðingur
    • PLO Íslandsmót
    • Coolbet Bikarinn 2026
  • Um PSÍ
    • Stjórn PSÍ
    • Lög sambandsins
    • Reglugerðir
    • Greiðslur til gjafara
    • Farsímareglur
    • Um ábyrgð og hegðun leikmanna
  • Hafa samband
  • Skráning!
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu

Ársþing PSÍ 2026

03/01/2026/0 Comments/by Stjórn PSÍ

Við óskum félagsmönnum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir frábæra þátttöku í mótum á vegum PSÍ á liðnu ári. Nýliðið ár var það áttunda sem núverandi stjórn hefur leitt sambandið og þátttaka í mótum ársins var með besta móti.

Við hefjum nýja árið með föstum liðum eins og venjulega en það er ársþing Pókersambands Íslands 2026 sem haldið verður laugardaginn 24.janúar kl. 13:00.

Dagskrá verður skv. 6. grein laga sambandsins sem finna má hér á vef PSÍ.

Við hvetjum alla sem vilja fylgjast með starfsemi og stöðu PSÍ og leggja eitthvað til málanna um starfsemi næstu missera, til að mæta, hvort sem þið hafið í huga að bjóða ykkur fram til starfa á vegum sambandsins eða ekki.

Ársþingið fer að þessu sinni eingöngu fram í net-heimum.

>> Smellið hér til að tengjast fundinum


Fyrir fundinum liggja eftirfarandi tillögur um breytingar á lögum PSÍ:

  • Lagt er til að 3.grein laga verði breytt í eftirfarandi:
    • “Á milli ársþinga er æðsta vald í málefnum sambandsins í höndum stjórnar, sem skipuð skal 3 einstaklingum, formanni, gjaldkera og ritara, auk tveggja varamanna, sem kosnir eru á ársþingi.

      Formann og gjaldkera skal kjósa sérstaklega til tveggja ára í senn og aðra stjórnarmenn til eins árs. Kjósa skal formann á árum sem enda á sléttri tölu og gjaldkera á árum sem enda á oddatölu. Ef formaður eða gjaldkeri ákveða að hætta á miðju kjörtímabili sínu skal kosið í það hlutverk til eins árs.

      Stjórninni er heimilt að mynda framkvæmdaráð, sem annast daglega stjórn sambandsins í umboði stjórnar og eftir framkvæmdaáætlun stjórnarinnar.

      Stjórninni skal heimilt að ráða framkvæmdastjóra sem annist daglegan rekstur eða framkvæmd ákveðinna viðburða eða móta í umboði stjórnar.

      Stjórnin skal framfylgja ályktunum og ákvörðunum ársþings og vera félögum til aðstoðar um málefni er varða starfsemi sambandsins. Fjárhagslegar skuldbindingar skulu vera háðar samþykki stjórnar.”
  • Lagt er til að 5.grein verði breytt í eftirfarandi:
    • “Ársþing fer með æðsta vald í málefnum sambandsins og skal haldið árlega í janúar eða febrúar ár hvert. Stjórnin boðar til þess með tveggja vikna fyrirvara með tölvupósti til skráðra félagsmanna og/eða á samfélagsmiðlum eða öðrum sambærilegum hætti. Dagskrá skal vera samkvæmt 6. grein nema annað sé ákveðið af stjórn og skal þá breytt dagskrá send út með einnar viku fyrirvara. Óski félagsmenn eða fulltrúar aðildarfélaga eftir því að bera fram tillögur um lagabreytingar á þinginu, skulu þær tillögur berast til stjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir ársþing og skal þeirra getið í tilkynningu um ársþing á vef PSÍ eigi síðar en viku fyrir ársþing. Rétt til setu á þinginu eiga allir fullgildir félagsmenn PSÍ skv 9. grein. Hver félagsmaður hefur eitt atkvæði, en getur þó farið með umboð fyrir einn annan félaga. Stjórninni er heimilt að bjóða gestum til þingsins sem áheyrnarfulltrúum.”
  • Lagt er til að síðustu setningu í 8.grein verði breytt í:
    • “Endurskoðun skal lokið 7 dögum fyrir ársþing.” (stytting á fresti úr 10 dögum í 7 daga).
  • Lagt er til að 7.kafli breytist í 6.kafla og 8.kafla í 7.kafla. (leiðrétting á númeraröð kafla sem einhvern tíma hefur riðlast).
  • Lagt er til að síðustu setningu í 7.grein verði breytt í “Til aukaþings skal boða með tveggja vikna fyrirvara.”
  • Lagt er til að liður f) í 2.grein laganna verði felldur út.
    • “Að stuðla að því að áhugamannapóker verði ótvírætt löglegur á Íslandi. Ekki er um að ræða atvinnupóker eða rekstur pókerspilavíta.”

Uppfært 25.jan. 2026 – Helstu niðurstöður ársþings PSÍ 2026:

  • Ný stjórn PSÍ er skipuð eftirfarandi:
    • Einar Þór Einarsson, formaður
    • Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri
    • Snorri Már Skúlason, ritari
    • Már Wardum, varamaður
    • Halldór Már Sverrisson, varamaður
  • Mótanefnd skipa:
    • Jón Ingi Þorvaldsson
    • Börkur Darri Hafsteinsson
    • Már Wardum
    • Halldór Már Sverrisson
  • Laga- og leikreglnanefnd skipa:
    • Jón Ingi Þorvaldsson
    • Einar Þór Einarsson
    • Inga Kristín Jónsdóttir
  • Ottó Marwin áfram kjörinn skoðunarmaður reikninga.
  • Ákveðið að halda árgjaldi óbreyttu en leita leiða til að veita afslátt af gjaldi ef greitt er fyrir nokkur ár í senn eða ef greitt er sjálkrafa með mánaðarlegum kreditkortagreiðslum
  • Allar lagabreytingar sem lagðar voru fyrir fundinn voru samþykktar einróma.
  • Drög að mótadagskrá kynnt:
    • Coolbet bikarinn: 1.feb.-22.mars og lokaborð 29.mars
      • 8 mót og 5 bestu gilda til stiga
    • (Íslandsmót U25 – ?. mars)
    • Bræðingur: 10.-12. maí
    • Smábokki: 14.-15. maí
    • Stórbokki: 16.-17. maí
    • ÍM í net-póker: 22. ágúst
    • ÍM í net-PLO: 29. ágúst
    • PLO Íslandsmót: 1. nóv.
    • Íslandsmótið í póker: 6.-8. nóv.
  • Tilboð frá Coolbet til félagsmanna kynt:
    • Allir sem greiða árgjald PSÍ fyrir 2026 fyrir lok febrúar munu fá eftirfarandi pakka frá Coolbet:
      • miða á Höfðingjann (€25-35)
      • miða á Coolbet bikarinn (€50)
Ný stjórn PSÍ, frá vinstri: Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri, Halldór Már Sverrisson, varamaður, Einar Þór Einarsson, formaður, Már Wardum, varamaður, Snorri Már Skúlason, ritari.

Hér fyrir neðan má nálgast ársskýrslu PSÍ og ársreikning fyrir árið 2025:

PSÍ – Ársskýrsla 2025Download
Share this entry
  • Share on Facebook
  • Share on X
  • Share on WhatsApp
  • Share on Pinterest
  • Share on LinkedIn
  • Share on Tumblr
  • Share on Vk
  • Share on Reddit
  • Share by Mail
https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2020/01/PSI-New-logo-2019-small-400px.png 194 400 Stjórn PSÍ https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2019/10/PSI-New-logo-2019-300x145.png Stjórn PSÍ2026-01-03 03:45:112026-01-25 20:10:25Ársþing PSÍ 2026
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply Cancel reply

You must be logged in to post a comment.

Nýlegar fréttir

  • Birkir vinnur Stórbokka 2026 18/05/2026
  • Staðan eftir dag 1 á Stórbokka 17/05/2026
  • Ingi Þór er Smábokki 2026 16/05/2026
  • Smábokki 2026 – Staðan eftir dag 1 15/05/2026
  • Einar Þór vinnur Mystery mótið 15/05/2026

Eldri fréttir

  • May 2026
  • April 2026
  • January 2026
  • November 2025
  • September 2025
  • August 2025
  • June 2025
  • May 2025
  • March 2025
  • January 2025
  • December 2024
  • November 2024
  • September 2024
  • August 2024
  • May 2024
  • April 2024
  • March 2024
  • January 2024
  • December 2023
  • November 2023
  • September 2023
  • August 2023
  • May 2023
  • April 2023
  • March 2023
  • February 2023
  • January 2023
  • December 2022
  • November 2022
  • September 2022
  • May 2022
  • April 2022
  • March 2022
  • February 2022
  • December 2021
  • November 2021
  • October 2021
  • September 2021
  • August 2021
  • June 2021
  • May 2021
  • April 2021
  • March 2021
  • February 2021
  • January 2021
  • December 2020
  • November 2020
  • October 2020
  • September 2020
  • August 2020
  • June 2020
  • April 2020
  • March 2020
  • February 2020
  • January 2020
  • December 2019
  • November 2019
  • October 2019
  • September 2019
  • August 2019
  • May 2019
  • April 2019
  • February 2019
  • January 2019
  • December 2018
  • October 2018
  • September 2018
  • August 2018
  • June 2018
  • May 2018
  • March 2018
  • October 2017
  • January 2017
  • March 2016
  • January 2016
  • October 2015
  • September 2015

Fréttaflokkar

  • Ársþing PSÍ
  • Fréttir
  • Greinar
  • Íslandsmót
  • Mót
  • Net-póker
  • PLO
  • Uncategorized

Pókersamband Íslands

Laugavegur 53B
101 Reykjavík
560807-0150
Félagasamtök
info@pokersamband.is

Allur réttur áskilinn - Pókersamband Íslands
  • Um PSÍ
  • Lög sambandsins
  • Fréttir
  • Skilmálar
  • Mótadagskrá 2025
Link to: Brynjar er Íslandsmeistari í PLO 2025 Link to: Brynjar er Íslandsmeistari í PLO 2025 Brynjar er Íslandsmeistari í PLO 2025 Link to: Coolbet bikarinn hefst sunnudaginn 1. febrúar! Link to: Coolbet bikarinn hefst sunnudaginn 1. febrúar! Coolbet bikarinn hefst sunnudaginn 1. febrúar!
Scroll to top Scroll to top Scroll to top