• Shopping Cart Shopping Cart
    0Shopping Cart
Pókersamband Íslands
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Mót
    • Mótadagskrá 2026
    • Mótadagskrá 2025
    • Íslandsmót
    • Stórbokki
    • Smábokki
    • Íslandsmót í net-póker
    • Bikarmót PSÍ
    • Bræðingur
    • PLO Íslandsmót
    • Coolbet Bikarinn 2026
  • Um PSÍ
    • Stjórn PSÍ
    • Lög sambandsins
    • Reglugerðir
    • Greiðslur til gjafara
    • Farsímareglur
    • Um ábyrgð og hegðun leikmanna
  • Hafa samband
  • Skráning!
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu

Hafþór sigurvegari á stærsta PLO Íslandsmóti frá upphafi

02/11/2026/0 Comments/by Stjórn PSÍ

Íslandsmótinu í Pot-Limit-Omaha lauk klukkan hálfeitt í gærkvöldi með sigri Hafþórs Sigmundssonar eftir langt einvígi við Brynjar Bjarkason sem varð í öðru sæti. Þeir voru nokkuð jafnir lengst af en eftir u.þ.b. klukkutíma heads-up leik tapaði Brynjar stórum potti og sat eftir með rétt rúmlega hálfan bb. Hann náði síðan að tvöfalda sig nokkrum sinnum og náði sér úr 25k upp í rúmlega 400k og var þá aftur kominn með um helming af meðalstakk. En þá enduðu þeir enn og aftur all-in í næstu hönd. Brynjar floppaði topp pari og hefði jafnað Hafþór ef það hefði haldið, en svo bakkaði Hafþór inn í fullt hús og hafði sigur.

Það má segja að hér hafi tveir af okkar allra bestu leikmönnum verið að kljást um PLO titilinn en Hafþór varð Íslandsmeistari í póker árið 2024, hann vann Stórbokka árið 2018 og ÍM í net-PLO árið 2023. Brynjar á ekki síðri feril að baki á mótum á vegum PSÍ. Hann var hér nálægt því að vinna PLO titilinn annað árið í röð, hann hefur tvisvar unnið ÍM í net-póker auk þess að vinna tvisvar sigur í Coolbet Bikarnum.

Mótið hófst klukkan 13:00 og markaði upphaf Íslandsmótavikunnar í þetta sinn sem fer í heild sinni fram í glæsilegum salarkynnum Hótel Borgar. Þátttakendur voru 33 talsins og keyptu 12 þeirra sig inn aftur en eitt re-entry er leyft í þessu móti. Alls voru því 45 entry í mótið og er þetta langfjölmennasta PLO mót sem PSÍ hefur haldið.

Heildar verðlaunafé var 1.470.000 en þetta er í fyrsta skipti sem þetta mót nær yfir milljón í verðlaunafé. Kostnaðarhlutfall var 18% og skiptist verðlaunaféð á milli 7 efstu með eftirfarandi hætti:

  1. Hafþór Sigmundsson – 520.000
  2. Brynjar Bjarkason – 340.000
  3. Pétur Dan Markússon – 210.000
  4. Vytatutas Rubezius – 140.000
  5. Steinar Edduson – 110000
  6. Hafsteinn Ingimundarson – 90.000
  7. Þröstur Ólafsson – 60.000

Mótsstjóri var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ og til aðstoðar var Snorri Már Skúlason, ritari PSÍ. Í störfum gjafara var úrvalslið Omaha gjafara, þau Alexander, Rannveig, Berglaug, Hanna, Bart og Maryna.

Við óskum Hafþóri til hamingju með sigurinn og öllum verðlaunahöfum einnig til hamingju með árangurinn. Við þökkum Borg Restaurant kærlega fyrir að útvega okkur þessa frábæru aðstöðu fyrir mótið og Coolbet fyrir vel heppnuð undanmót en þetta tvennt átti lykilþátt í að mótið varð jafn fjölmennt og raun bar vitni. Stjórn PSÍ þakkar síðan öllum sem tóku þátt í mótinu og þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd mótsins fyrir að gera gott mót!

Íslandsmótsvikan er rétt að byrja og við sjáumst vonandi sem flest kvöld vikunnar á Hótel Borg!!

Hafþór með eignarbikar ársins fyrir Íslandsmeistaratitilinn í PLO
Hafþór og Brynjar áttust við heads-up í rúmlega klukkustund áður en Hafþór bar sigur úr býtum
Lokaborðið á ÍM í PLO 2026

Share this entry
  • Share on Facebook
  • Share on X
  • Share on WhatsApp
  • Share on Pinterest
  • Share on LinkedIn
  • Share on Tumblr
  • Share on Vk
  • Share on Reddit
  • Share by Mail
https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2026/11/IMG_6846-scaled.jpeg 1762 2560 Stjórn PSÍ https://pokersamband.is/wp-content/uploads/2019/10/PSI-New-logo-2019-300x145.png Stjórn PSÍ2026-11-02 22:01:232026-11-02 22:05:06Hafþór sigurvegari á stærsta PLO Íslandsmóti frá upphafi
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply Cancel reply

You must be logged in to post a comment.

Nýlegar fréttir

  • Hafþór sigurvegari á stærsta PLO Íslandsmóti frá upphafi 02/11/2026
  • Íslandsmótið í póker 2026 – Icelandic poker championship 2026 21/09/2026
  • Birkir vinnur Stórbokka 2026 18/05/2026
  • Staðan eftir dag 1 á Stórbokka 17/05/2026
  • Ingi Þór er Smábokki 2026 16/05/2026

Eldri fréttir

  • November 2026
  • September 2026
  • May 2026
  • April 2026
  • January 2026
  • November 2025
  • September 2025
  • August 2025
  • June 2025
  • May 2025
  • March 2025
  • January 2025
  • December 2024
  • November 2024
  • September 2024
  • August 2024
  • May 2024
  • April 2024
  • March 2024
  • January 2024
  • December 2023
  • November 2023
  • September 2023
  • August 2023
  • May 2023
  • April 2023
  • March 2023
  • February 2023
  • January 2023
  • December 2022
  • November 2022
  • September 2022
  • May 2022
  • April 2022
  • March 2022
  • February 2022
  • December 2021
  • November 2021
  • October 2021
  • September 2021
  • August 2021
  • June 2021
  • May 2021
  • April 2021
  • March 2021
  • February 2021
  • January 2021
  • December 2020
  • November 2020
  • October 2020
  • September 2020
  • August 2020
  • June 2020
  • April 2020
  • March 2020
  • February 2020
  • January 2020
  • December 2019
  • November 2019
  • October 2019
  • September 2019
  • August 2019
  • May 2019
  • April 2019
  • February 2019
  • January 2019
  • December 2018
  • October 2018
  • September 2018
  • August 2018
  • June 2018
  • May 2018
  • March 2018
  • October 2017
  • January 2017
  • March 2016
  • January 2016
  • October 2015
  • September 2015

Fréttaflokkar

  • Ársþing PSÍ
  • Fréttir
  • Greinar
  • Íslandsmót
  • Mót
  • Net-póker
  • PLO
  • Uncategorized

Pókersamband Íslands

Laugavegur 53B
101 Reykjavík
560807-0150
Félagasamtök
[email protected]

Allur réttur áskilinn - Pókersamband Íslands
  • Um PSÍ
  • Lög sambandsins
  • Fréttir
  • Skilmálar
  • Mótadagskrá 2025
Link to: Íslandsmótið í póker 2026 – Icelandic poker championship 2026 Link to: Íslandsmótið í póker 2026 – Icelandic poker championship 2026 Íslandsmótið í póker 2026 – Icelandic poker championship 2026
Scroll to top Scroll to top Scroll to top