Ingi Þór er Smábokki 2026

Smábokka 2026 lauk núna rétt fyrir miðnættið og var það Ingi Þór Einarsson sem bar sigur úr býtum eftir rúmlega klukkustundar heads-up viðureign við Halldór Má Sverrisson.

77 tóku þátt í mótinu í ár og voru endurkaup 40 talsins þannig að heildarfjöldi þátttökugjalda í mótið var 117 en boðið var upp á ein endurkaup skv. áralangri venju. Þetta er því næst fjölmennasti Smábokkinn frá upphafi en aðeins fyrsta mótið var fjölmennara en þá tóku 109 þátt. Verðlaunapotturinn endaði í 2.980.000 sem er stærsti verðlaunapottur frá upphafi í þessu móti.

Mótið var í annað sinn haldið sem hluti af pókerhátíðinni Midnight Sun Poker, þar sem Bræðingi, Smábokka og Stórbokka er slegið saman í 6 daga póker veislu ásamt nokkrum hliðarmótum. Hátíðin var lítillega kynnt á erlendum vettvangi og komu 5 erlendir gestir á mótið, þar af 1 sem er í top 10 á lista Hendon Mob yfir svokallaða “flaghunters”.

Þau sem skiptu verðlaunasætunum með sér voru:

  1. Ingi Þór Einarsson, 750.000
  2. Halldór Már Sverrisson, 550.000
  3. Hrannar Hallgrimsson, 360.000
  4. Anton Jarl Jóhannsson Bachmann, 290.000
  5. Helgi Reynir Guðmundsson, 230.000
  6. Haraldur Pétursson, 180.000
  7. Anu Kristiina Lilja, 140.000
  8. Eiríkur Garðar Einarsson, 110.000
  9. Hafsteinn Esjar Baldursson, 90.000
  10. Egill Þorsteinsson, 75.000
  11. Tomasz Janusz Mroz, 75.000
  12. Sigurður Þorgeirsson, 65.000
  13. Steinar Edduson, 65.000

Steinar Snær Sævarsson sá um mótsstjórn ásamt Má Wardum og Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ, sá um skipulagningu og undirbúning mótsins.

Við þökkum Reykjavík Royale og Coolbet kærlega fyrir samstarfið og fyrir að veita okkur aðgang að aðstöðu þeirra. Einnig þökkum við Coolbet fyrir að halda fyrir okkur undanmót eins og þeim einum er lagið en tíð undanmót vikurnar fyrir mótið voru tvímælalaust lykill að góðri þátttöku.

Að lokum óskum við Inga Þór til hamingju með árangurinn og hlökkum til að sjá félagsmenn á lokamóti Midnight Sun Poker, Stórbokka sem hefst kl. 13:00 á morgun, laugardag!

Einnig fór fram lítið og nett 25k Pinapple hliðarmót með yfirskriftina “Friday Beach Party”og voru entry í það mót 16 talsins.

Verðlaunafé var 340.000 og skiptist á milli 2 efstu sæta og það voru þeir Einar Þór Einarsson og Óli Björn Karlsson sem tóku tvö efstu sætin og er þetta annað hliðarmótið í vikunni sem Einar Þór vinnur sigur í.

Verðlaunaféð skiptist á milli þeirra tveggja á eftirfarandi hátt:

  1. Einar Þór Einarsson, 220.000
  2. Óli Björn Karlsson, 120.000

Smábokki 2026 – Staðan eftir dag 1

Það voru 77 sem mættu til leiks á Smábokka sem hófst kl. 14:00 fimmtudaginn 14.maí. Endurkaup voru 44 talsins og verðlaunapotturinn endaði í 2.983.000 og verður honum skipt á milli 13 efstu sætanna. Kostnaðarhlutfall mótsins er 15%. Til stóð að leika til miðnættis eða þegar 9 stæðu eftir. En þar sem búbblan var komin í gang fyrir miðnættið þá var ákveðið að klára hana og sprakk hún klukkan rétt rúmlega eitt.

Stakkstærð hjá þeim 13 sem komust inn fyrir búbbluna og komast á dag 2 er eftirfarandi:

Hrannar Hallgrimsson576.000
Hafsteinn Esjar Baldursson564.000
Haraldur Pétursson490.000
Sigurður Þorgeirsson357.000
Ingi Þór Einarsson340.000
Egill Þorsteinsson257.000
Anton Jarl Jóhannsson Bachmann188.000
Tomasz Janusz Mroz181.000
Steinar Edduson161.000
Anu Kristiina Lilja144.000
Halldór Már Sverrisson131.000
Eiríkur Garðar Einarsson120.000
Helgi Reynir Guðmundsson31.000

Leikar hefjast að nýju kl. 18:30 í dag, föstudag 15.maí.

Einar Þór vinnur Mystery mótið

Við hófum Midnight Sun Poker hátíðina formlega með látum í á miðvikudagskvöld með Coolbet Mystery mótinu. 52 mættu til leiks og voru endurkaup 39 talsins og endaði aðal verðlaunapotturinn í 1.820.000 og Mystery verðlaunapotturinn í 1.274.000. Fjórir veglegir aukavinningar voru einnig í pottinum, €1600 og €550 pakkar á Coolbet Open í boði Coolbet og miðar á Stórbokka og Smábokka í boði PSÍ.

Það var Einar Þór Einarsson sem endaði í 1.sæti og Breki Konráðsson varð í 2.sæti. Hver og einn sem komst á lokaborðið fékk að draga einn af mystery vinningunum og auk þess skiptist verðlaunapotturinn á milli 9 efstu auk þess sem búbblusætið fékk miða á Smábokka í sárabætur:

  1. Einar Þór Einarsson – 515.000 (Miði á Stórbokka)
  2. Breki Konráðsson – 365.000 (150.000)
  3. Tomasz Janusz Mroz – 255.000 (274.000)
  4. Haraldur Pétursson – 195.000 (200.000)
  5. Bernharð Arinbjarnarson – 150.000 (€550 pakki á Coolbet Open)
  6. Árni Gunnarsson – 115.000 (100.000)
  7. Óli Björn Karlsson – 90.000 (300.000)
  8. Andri Már Ágústsson – 75.000 (250.000)
  9. Sigurður Baldvin Friðriksson – 65.000 (€1600 pakki á Coolbet Open)
  10. Steinar Edduson (Miði á Smábokka)

Mótsstjóri var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ og sá hann einnig um undirbúning og skipulag mótsins.

Við óskum öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum félagsmönnum góða þátttöku og Reykjavík Royale fyrir frábæra aðstöðu fyrir mótið.

Tómas Örnólfsson er sigurvegari í Bræðingi 2026

Bræðingur var haldinn í þriðja sinn nú í vikunni. Mótið hófst á Coolbet sl. sunnudag þar sem leikið var niður í 9 manna lokaborð og hélt mótið síðan áfram í sal Reykjavík Royale í gærkvöldi þar sem lokaborðið var leikið til enda. Það var Tómas Örnólfsson (Tomasoo1) sem stóð uppi sem sigurvegari eftir dágóða heads-up viðureign við Olgeir Karvelsson.

Tómas kom inn á lokaborðið með gott chip-lead og í heads-up viðureigninni skiptust þeir Olgeir á að dobbla hvor annan upp nokkrum sinnum þar til Tómas á endanum hafði betur.

Alls tóku 61 þátt í mótinu í þetta sinn og endurkaup voru 45 talsins. Það voru 700þús. kr. sem enduðu í prizepoolinu en þess má geta að í þessu móti tekur PSÍ ekkert fyrir að halda mótið og Coolbet tekur aðeins 9% fyrir að halda mótið fyrir okkur þrátt fyrir ærna fyrirhöfn á báðum vígstöðvum þar sem um mjög sérstakt setup er að ræða.

Verðlaunaféð skiptist á milli þeirra 9 sem komust á lokaborðið með eftirfarandi hætti:

  1. Tómas Örnólfsson – 200.000
  2. Olgeir Karvelsson – 140.000
  3. Andrés Róbert Vilhjálmsson – 95.000
  4. Erika Avetisian – 75.000
  5. Daniel Jacobsen – 55.000
  6. Jón Óskar Agnarsson – 45.000
  7. Daníel Már Pálsson – 35.000
  8. Birkir Viðar Haraldsson – 30.000
  9. Eyþór Sigurðsson – 25.000

Eitt af því sem gerir þetta mót sérlega skemmtilegt er að það dregur fram í dagsljósið ný andlit sem hafa ekki sést á öðrum mótum og á þessu móti komust fjórir leikmenn á lokaborðið sem ekki höfðu tekið þátt í neinum mótum á vegum PSÍ áður.

Það var Jón Ingi Þorvaldsson, gjaldkeri PSÍ, sem var mótsstjóri á lokaborðinu og hafði hann einnig veg og vanda að því að skipuleggja mótið.

Við óskum Tómasi til hamingju með sigurinn og þökkum félagsmönnum fyrir stórskemmtilegt mót og Coolbet sérstaklega fyrir að standa í þessu með okkur.

Brynjar Bjarkason (makk) vinnur enn einn Coolbet bikarinn

Lokaborð Coolbet bikarsins 2026 fór fram laugardaginn 4.mars og lauk honum með sigri Brynjars Bjarkasonar (makk). Þetta er í annað sinn sem hann vinnur sigur í þessari mótaröð en hann vann sigur í fyrsta Coolbet bikarnum sem haldinn var árið 2020.

Þar með er orðið óhætt að segja að hann sé orðinn sigursælasti net-póker spilarinn í sögu PSÍ, en hann hefur einnig tvisvar unnið ÍM í net-póker, og að auki tók hann Íslandsmeistaratitilinn í PLO árið 2025.

Við óskum Brynjari til hamingju með enn einn sigurinn og hina glæsilegu vinninga sem hann sópaði til sín. En hann fær að launum €1600 pakka á Coolbet Open sem fram fer í Tallinn í haust, auk €600 í TM á Coolbet og svo fær hann verðlaunagrip frá PSÍ sem afhentur verður á Midnight Sun Poker hátíðinni sem fram fer í maí.

Heildarúrstlit á lokaborðinu urðu þessi:

SætiNafnCoolbet IDVerðlaun
1Brynjar Bjarkasonmakk€1600 pakki á Coolbet Open + €600 TM
2Viktor Helgi BenediktssonBanco€1600 pakki á Coolbet Open + €300 TM
3Kristján Loftur HelgasonBlakaldur€1600 pakki á Coolbet Open
4Örn ÁrnasonOrninn€550 pakki á Coolbet Open
5Atli ÞrastarsonWhiskyMaster€550 pakki á Coolbet Open
6Alexandru Marian FloreaHowaboutaHug€550 pakki á Coolbet Open
7Kristinn PéturssonHunterinn€550 pakki á Coolbet Open
8Anton Jarl Jóhannsson BachmannChillDudeChecks€550 pakki á Coolbet Open
9Sigurður ÞengilssonEldsmidur€550 pakki á Coolbet Open

Við þökkum félagsmönnum fyrir einstaklega vel heppnaða mótaröð að þessu sinni. Það var metþátttaka í þetta sinn. Alls tóku 100 einhvern þátt í mótunum, 80 tóku þátt í stigakeppninni og heildarverðlaunafé var tvöfalt hærra en í fyrra.

Og ekki síst þá þökkum við Coolbet kærlega fyrir að standa þétt við bakið á okkur með þessa farsælu mótaröð enn eitt árið og fyrir hina glæsilegu aukavinninga, sem voru tvöfalt hærri nú en nokkru sinni fyrr!

Svo sjáumst við öll á Coolbet Open 2026 í Tallinn í haust! 

Lokastöðuna í stigakeppni Coolbet bikarsins má finna hér.

Midnight Sun Poker 2026

(For information in English, click here)

Annað árið í röð blásum við til pókerveislunnar Midnight Sun Poker 2026. Þar sláum við saman þremur mótum sem hafa verið á mótadagskránni, Bræðingi, Smábokka og Stórbokka og gerum úr því viku pókerhátíð með nokkrum hliðarmótum.

Bræðingur var endurvakinn í fyrra eftir nokkurra ára hlé en í því móti bræðum við saman net-póker og live póker í skemmtilegri samsetningu sem hefst á Coolbet sunnudaginn 10.maí og lýkur svo með live lokaborði þriðjudaginn 12.maí.

Á miðvikudeginum verður veglegt 40k mystery bounty mót þar sem Coolbet og PSÍ gefa glæsilega aukavinninga. Coolbet gefur €1600 pakka á Coolbet Open og PSÍ gefur aukamiða á Stórbokka og Smábokka.

Fimmtudaginn 14.maí (Uppstigningardag) kl. 14:00 hefst svo Smábokki með aðeins breyttu sniði þar sem leikið verður niður á lokaborð á degi 1 og dagur 2 hefst síðan kl. 18:00 á föstudeginum.

Hátíðinni lýkur síðan með Stórbokka sem verður hápunktur vikunnar. Stórbokki verður einnig með aðeins breyttu sniði en hann verður nú í fyrsta sinn leikinn á tveimur dögum. Leikið verður niður á lokaborð á laugardeginum og leikur heldur síðan áfram á sunnudegi þar sem mótið verður klárað. Þátttökugjaldið er 150.000 kr. eins og fyrri ár og hægt að kaupa sig aftur inn ótakmarkað fyrir 120.000 kr. Innifalið í Stórbokka er vegleg máltíð í hléi.

Sjá allar nánari upplýsingar á upplýsingavef hátíðarinnar (á ensku).

Undanmót hefjast á skírdag, fimmtudaginn 2.apríl á Coolbet, einnig verða undanmót á föstudaginn langa kl. 20:00 og síðan alla sunnudaga frá og með páskadegi og fram til 10.maí.

Brynjar er Íslandsmeistari í PLO 2025

Íslandsmótinu í Pot-Limit-Omaha lauk rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi með sigri Brynjars Bjarkasonar; sem flestir þekkja eflaust sem “Makkarann”. Í öðru sæti varð Már Wardum og í því þriðja varð Reynir Örn Einarsson. Það hefur löngum verið ljóst að Brynjar sé einn af okkar allra fremstu spilurum og hefur hann m.a. orðið Íslandsmeistari í net-póker tvisvar sinnum og var hann með því fyrstur til að vinna sama titil tvisvar í mótum á vegum PSÍ, og einnig vann hann Coolbet bikarinn þegar hann var haldinn í fyrsta sinn árið 2020. En þetta er í fyrsta sinn sem hann vinnur sigur í live móti á vegum PSÍ.

Mótið hófst klukkan 14:00 og fór fram í salarkynnum Hugaríþróttafélagsins. Þátttakendur voru 19 talsins og keyptu 7 þeirra sig inn aftur en eitt re-entry er leyft í þessu móti. Alls voru því 26 entry í mótið sem er smá fækkun frá því í fyrra en svipað og verið hefur í þessu móti.

Þetta mót hefur á undanförnum árum verið lítillega niðurgreitt af PSÍ og kostnaður mótsins endaði að þessu sinni í 27,5%, m.a. vegna þess að ákveðið var að splæsa í veitingar fyrir þátttakendur og starfsfólk þar sem þetta var síðasti viðburður ársins hjá okkur. Kostnaðarhlutfall var hins vegar fest í 15% og var verðlaunafé því 85% af þátttökugjöldum eða 884.000 og skiptist það á milli 5 efstu með eftirfarandi hætti:

  1. Brynjar Bjarkason, 340.000
  2. Már Wardum, 225.000
  3. Reynir Örn Einarsson, 150.000
  4. Þórarinn Kristjánsson Ólafsson, 100.000
  5. Hrannar Hallgrimsson, 70.000

Mótsstjóri var Einar Þór Einarsson, undirbúningur og skipulag mótsins var í höndum Jóns Inga Þorvaldssonar, gjaldkera PSÍ, og í störfum gjafara var úrvalslið Omaha gjafara, þau Alexander, Rannveig, Kai og Berglaug..

Við óskum Brynjari til hamingju með sigurinn og öllum verðlaunahöfum einnig til hamingju með árangurinn. Við þökkum Hugaríþróttafélaginu fyrir að útvega okkur þessa frábæru aðstöðu fyrir mótið og Coolbet fyrir vel heppnuð undanmót og öllum sem komu að skipulagi og framkvæmd mótsins fyrir vel unnin störf!

Þetta var sem fyrr segir síðasti viðburður ársins á vegum PSÍ og við þökkum félagsmönnum fyrir góða þátttöku í mótum ársins og sjáumst eldhress á nýju ári!

Brynjar með sigurhöndina á ÍM í PLO 2025
Már og Brynjar í þungum þönkum í heads-up leik þeirra á lokaborði ÍM í PLO 2025
Lokaborðið á ÍM í PLO 2025. Frá vinstri: Egill Þorsteinsson, Már Wardum, Reynir Örn Einarsson, Grétar Már Steindórsson, Brynjar Bjarkason, Rannveig Erikssen (gjafari), Hrannar Hallgrímsson og Þórarinn Kristjánsson Ólafsson.

Íslandsmótið í PLO 2025

Síðasti viðburður ársins hjá okkur að þessu sinni er Íslandsmótið í Pot-Limit-Omaha.

Mótið fer fram í sal Hugaríþróttafélagsins laugardaginn 15. nóvember og hefst kl. 14:00.

Þátttökugjald er kr. 40.000 og hækkar fyrir seinar skráningar eftir kl. 14:00 á föstudeginum 14.nóv. í kr. 45.000.

Boðið er upp á eitt re-entry eins og verið hefur undanfarin ár.

Skráningarfrestur rennur síðan út í matarhléi sem er kl. 18:10-18:30.

Skráning og greiðsla þátttökugjalda fer að vanda fram hér á vef PSÍ.

Nánari upplýsingar um strúktúr mótsins má finna hér.

Skráið ykkur endilega inn á FB eventið sem finna má hér.

Eftirfarandi undanmót verða í boði á Coolbet fyrir mótið:

  • Þriðjud. 11.nóv. kl. 20:00
  • Miðvikud. 12.nóv. kl. 20:00
  • Fimmtud. 13.nóv. kl. 20:00
  • Föstud. 14.nóv. kl. 20:00

Þeir sem vinna fleiri en einn miða í undanmótum og þurfa ekki nota aukamiðann geta fengið hann endurgreiddan sem Tournament Money á Coolbet eftir helgina.

Sigurður er Íslandsmeistari í póker 2025

Íslandsmótinu í póker lauk kl. 17:25 í gær með með sigri Sigurðar Þorgeirssonar eftir mjög stutta heads-up viðureign við Daníel Má Pálsson sem stóð aðeins yfir í 3 hendur. Í þriðja sæti varð Jónas Nordquist. Daníel kom inn á dag 3 með stærsta stakkinn en átti í vök að verjast allan daginn og var kominn niður í 6BB þegar hann og Sigurður, sem þá var með 170BB, enduðu heads-up. Þetta er líklega eitt stysta lokaborð í sögu þessa móts en það stóð aðeins yfir í rétt rúmar 4 klst.

Heildarfjöldi þátttakenda var 106 og tók 51 þátt í degi 1a og 55 á degi 1b og komust samtals 49 þeirra á dag 2. Á degi 2 var leikið frá kl. 14:00 og rétt fram yfir miðnættið en þá stóðu 9 eftir sem mynduðu lokaborðið.

Magnús Valur Böðvarsson mætti á staðinn á degi 3 og var með beina textalýsingu frá lokaborðinu sem finna má hér.

(Lokaborðið á ÍM í póker 2025. Frá vinstri: Hjalti Már Þórisson, Daníel Már Pálsson, Örn Árnason, Egill Þorsteinsson, Þórarinn Kristjánsson Ólafsson, Óskar Örn Eyþórsson, Sigurður Þorgeirsson, Hafþór Sigmundsson. Á myndina vantar Jónas Nordquist)

Heildarverðlaunafé var 7.150.000 og skiptist það á milli 15 efstu sæta. Kostnaðarhlutfall mótsins var 15,7%.

Eftirfarandi skiptu með sér verðlaunafénu og Garðar Geir sem endaði í 16. sæti (búbblusætinu) fékk í sárabætur miða á ÍM 2026:

1. Sigurður Þorgeirsson1.600.000
2. Daníel Már Pálsson1.200.000
3. Jónas Nordquist900.000
4. Örn Árnason690.000
5. Hjalti Már Þórisson550.000
6. Óskar Örn Eyþórsson450.000
7. Þórarinn Kristjánsson Ólafsson360.000
8. Egill Þorsteinsson280.000
9. Hafþór Sigmundsson220.000
10. Kristján Bragi Valsson170.000
11. Daniel Jacobsen170.000
12. Hrannar Hallgrimsson150.000
13. Gizur Gottskálksson150.000
14. Ernestas Trofimovas130.000
15. Arnar Gudmundsson130.000
16. Garðar Geir HaukssonMiði á ÍM 2026

Mótsstjórar voru þeir Jón Ingi Þorvaldsson, sem einnig sá um skipulag og undirbúning mótsins, Már Wardum og Einar Þór Einarsson. Í störfum gjafara voru Alexander, Rannveig, Berglaug, Erika, Bjarni Veigar, Bart, Kamila, Maryna, Dísa Lea og Kristjana Rós. Við kunnum þeim öllum bestu þakkir fyrir frábær störf.

Samhliða lokaborðinu var leikið 30K re-entry hliðarmót þar sem 25 tóku þátt og voru entry í mótið samtals 34. Verðlaunafé endaði í 860.000 sem skiptist á milli 5 efstu sæta. Það var Ívar Örn Böðvarsson sem bar sigur úr býtum í því móti og hlýtur að launum 330.000.

Við þökkum Hugaríþróttafélaginu kærlega fyrir þá frábæru aðstöðu sem félagið veitti okkur til að halda mótið og auk þess fyrir frábæra undanmótaröð í allt haust en alls komu 60 miðar út úr undanmótum í þetta sinn, þar af 39 úr mótum á vegum Hugaríþróttafélagsins. Einnig kom 21 miði út úr undanmótum á Coolbet sem hefur eins og fyrri ár reynst okkur ómetanlegur bakhjarl og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir frábært samstarf.

Að lokum minnum við á að mótadagskránni er ekki alveg lokið enn. Íslandsmótin í PLO er eftir en það fer fram nk. laugardag, 15.nóvember kl. 14:00 í sal Hugaríþróttafélagsins.

Við óskum Sigurði til hamingju með titilinn og öðrum verðlaunahöfum helgarinnar til hamingju með árangurinn, þökkum félagsmönnum fyrir góða þátttöku og hlökkum til að sjá ykkur á næsta móti!

Bein lýsing frá lokaborði ÍM í póker 2025

Magnús Valur Böðvarsson mætir í hús og verður með beina lýsingu frá lokaborðinu á ÍM í póker 2025.

> Bein lýsing frá lokaborði á ÍM í póker 2025 <