Entries by Jon Thorvaldsson

Coolbet bikarinn hefst á sunnudag!

Fyrsta mótið í mótaröðinni Coolbet Bikarinn hefst á sunnudag kl. 20:00.  Þátttökugjald í hverju móti er €55 og er hvert mót fyrir sig leikið með freezout fyrirkomulagi, þ.e.a.s. ekki er hægt að kaupa sig inn aftur. €50 fara beint í verðlaunafé rétt eins og í öðrum on-line mótum og síðan bætir Coolbet við glæsilegum vinningum í lokin […]

Mótadagskrá 2020

Við byrjum með látum þetta árið en fyrstu mót ársins verða núna strax í janúar.  Hér má sjá mótadagskrá ársins eins og hún liggur fyrir nú en dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar og viljum við biðja félagsmenn að rýna í hana og senda okkur athugasemdir sem allra fyrst ef þarna hafa verið valdar einhverjar óhentugar […]

Ársþing PSÍ 2020

Ársþing Pókersambands Íslands 2020 verður haldið í Kornhlöðunni á veitingastaðnum Lækjarbrekku, sunnudaginn 26.janúar kl. 16:00. Dagskrá verður skv. 6. grein laga sambandsins sem finna má hér á vef PSÍ. Við hvetjum alla félasgmenn til þess að mæta hvort sem þið gefið kost á ykkur til starfa fyrir sambandið eður ei. Lagðar verða fyrir þingið eftirfarandi […]

Úrslit á ÍM í net-póker 2019

Það var hinn góðkunni Sævar Ingi Sævarsson sem hreppti Íslandsmeistaratitilinn í net-póker eftir rétt rúmlega fjögurra klukkustunda leik á Íslandsmótinu í net-póker sem fram fór á Coolbet í gærkvöldi.  Sævar hefur stimplað sig rækilega inn sem einn af okkar bestu spilurum en hann varð m.a. í öðru sæti á ÍM 2018 og vann sigur á […]

Íslandsmótið í net-póker 2019

Mótadagskráin er ekki alveg búin þetta árið, en Íslandsmótið í net-póker er eftir og verður það haldið sunnudaginn 15.desember kl. 20:00.  Mótið fer fram á Coolbet að þessu sinni og verður buy-in €88 (€80+8).  Þetta verður deepstack mót með 15k upphafsstakk og 12 mínútna level og verður skráningarfrestur út level 8. Nokkur undanmót verða haldin […]

Örnólfur Smári er Íslandsmeistari í póker 2019!

Örnólfur Smári Ingason er Íslandsmeistari í póker 2019!   Íslandsmótinu var að ljúka síðdegis á sunnudag eftir stutta og snarpa viðureign þeirra sem komust á lokaborð. Aðeins tók 3 og hálfa klukkustund að knýja fram úrslit en lokaborðið hófst kl 13:30 og síðasta hendin var gefin kl 16:59.   Örnólfur var með næststærsta stakkinn í […]

Lokavikan fyrir ÍM 2019!

Það verður mikið um að vera í þessari viku.  Þrjú undanmót eru eftir og auk þess fer COOLBET í gang með veðmál á leikmenn í mótinu nú í vikunni. Dagskrá vikunnar er í megindráttum þessi: Þriðjudagur 29.okt. 19:00 – Undanmót hjá Hugaríþróttafélaginu.  Ótakmarkað 5k re-buy með 2k add-on! Miðvikudagur 30.okt. 19:30 – Undanmót hjá Spilaklúbbi […]

Undanmót fyrir ÍM 2019

Fyrstu online undanmótin hefjast á morgun sunnudaginn 6.október kl. 20:00. Það er Coolbet sem sér um það fyrir okkur í ár, rétt eins og í fyrra. Mótin verða með €33 buy-in og hægt verður að kaupa sig inn aftur ótakmarkað fyrsta klukkutímann. Undanmót verða á Coolbet hvern sunnudag og miðvikudag kl. 20:00 fram að Íslandsmóti […]

Hótel tilboð vegna ÍM 2019

Hótel tilboð vegna ÍM 2019 (English below) Hótel Vellir býður félagsmönnum PSÍ eftirfarandi sérkjör á hótelherbergjum helgina 1.-3. nóvember: Eins manns herbergi: 12.000 kr./nótt Tveggja manna herb.: 14.500 kr./nótt Til að bóka sendið tölvupóst á info@hotelvellir.com með eftirfarandi upplýsingum: – Nafn – Dagsetningar – Hvort þið viljið eins eða tveggja manna herbergi. – Takið fram […]

Íslandsmótið í Póker 2019!

Íslandsmótið í póker verður haldið helgina 1.-3. nóvember í ár.  Mótið verður með svipuðu sniði og í fyrra og verður haldið á sama stað, enda virtist almenn ánægja með fyrirkomulagið. Mótið verður haldið á Hótel Völlum í Hafnarfirði og hefst það kl. 17:00 á föstudeginum 1. nóvember.  Dagur 2 hefst kl. 12:00 á laugardag 2.nóv […]