Sævar Ingi er Smábokkinn 2019
Það var Sævar Ingi Sævarsson sem hreppti titilinn Smábokkinn 2019 og 319.000 í verðlaunafé. Í öðru sæti varð Tomasz Kwiatkowski og í því þriðja Mindaugas Ezerskis. Þeir 9 efstu sem komust á lokaborðið skiptu verðlaunafénu á milli sín og hér að neðan má sjá hvernig 9 efstu sætin röðuðust.
Alls tóku 59 einstaklingar þátt í mótinu og 10 þeirra kepptu bæði á degi 1a og 1b þannig að skráningar voru alls 69 talsins, sem er umtalsverð fjölgun frá því í fyrra en þá voru skráningar 51. Heildar þátttökugjöld voru 1.380.000 kr. og fóru 1.212.000 af því í verðlaunafé eða 87,8% og kostnaðarhlutfall því 12,2%.
Mótið fór fram hjá Spilafélaginu að Grensásvegi og þökkum við forsvarsmönnum þess kærlega fyrir samstarfið við framkvæmd mótsins. Mótsstjóri var Már Wardum og auk hans sáu Inga Kristín Jónsdóttir og Einar Þór Einarsson um störf gjafara á lokadeginum. Það var mál manna að mótið hefði tekist vel í alla staði og þakkar stjórn PSÍ öllum sem komu að framkvæmd mótsins fyrir vel unnin störf og félagsmönnum fyrir góða þátttöku!
Sæti | Nafn | Verðlaunafé |
1 | Sævar Ingi Sævarsson | 319000 |
2 | Tomasz Kwiatkowski | 289000 |
3 | Mindaugas Ezerskis | 165000 |
4 | Branimir Jovanovic | 125000 |
5 | Gylfi Þór Jónasson | 97000 |
6 | Júlíus Pálsson | 76000 |
7 | Einar Eiríksson | 59000 |
8 | Guðmundur Helgason | 46000 |
9 | Dominik Wojciechowski | 36000 |
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá lokaborðinu.