Stórbokki
Stórbokki var fyrst haldinn árið 2015 og var þá fyrsta mótið sem haldið var á vegum PSÍ með yfir 100þús. kr þátttökugjaldi. Mótið hefur síðan verið fastur liður í mótadagskrá PSÍ með buy-in sem að jafnaði er tvöfalt hærra en í Íslandsmóti sama árs. Mótið hefur verið haldið á einum degi og er jafnan haldið með veglegri hætti en önnur mót og m.a. boðið upp á veglegar veitingar fyrir þátttakendur og starfsfólk mótsins. Mótið var fellt niður á covid-árunum 2020 og 2021 vegna samkomutakmarkana en kom aftur inn á mótadagskrána fyrir 2022.
Sigurvegarar í Stórbokka frá upphafi:
Ár | Sigurvegari | Þátttakendur | Re-entries | Total entries | Þátttökugjald | Verðlaunafé | Verðlaunasæti |
2015 | Garðar Geir Hauksson | 45 | ? | ? | 120.000 | ? | ? |
2016 | Steinar Edduson | 40 | ? | ? | 120.000 | ? | ? |
2017 | Jón Ingi Þorvaldsson | 24 | 2 | 26 | 120.000 | 2.600.000 | 4 |
2018 | Hafþór Sigmundsson | 17 | 1 | 18 | 120.000 | 1.753.000 | 4 |
2019 | Sveinn Rúnar Másson | 17 | 4 | 21 | 120.000 | 2.100.000 | 4 |
2020 | (fellt niður vegna Covid-19) | ||||||
2021 | (fellt niður vegna Covid-19) | ||||||
2022 | Matte Bjarni Karjalainen | 29 | 14 | 43 | 150.000 | 5.235.000 | 6 |
2023 | Egill Þorsteinsson | 22 | 11 | 33 | 150.000 | 4.000.000 | 5 |
2024 | Emmanuel Mamelin | 25 | 5 | 30 | 150.000 | 3.720.000 | 4 |
2025 | Sigurður Þengilsson | 30 | 12 | 42 | 150.000 | 5.040.000 | 6 |