Coolbet býður enn og aftur til glæsilegrar veislu og stærri en nokkru sinni fyrr! Þetta er í áttunda sinn sem Coolbet bikarinn er haldinn og verðlaunapotturinn verður nú tvöfalt stærri en undanfarin ár eða samtals €9000!
Fyrsta umferð fer fram sunnudaginn 1.febrúar og leiknar verða 8 umferðir að þessu sinni og fer lokaborðið fram sunnudaginn 29.mars.
Að þessu sinni eru allir sem komast á lokaborðið að fara á Coolbet Open sem fram fer í ágúst 2026! Þrír efstu fá svo að auki hótel og farareyri, eða samtals €1600 pakka.
Þátttökugjald í hverju móti verður €50 og í þetta sinn verða tvö re-entry leyfð og er greitt út verðlaunafé með venjulegum hætti í hverju móti, þ.e. ekkert er tekið úr prizepool í hverju móti vegna aukaverðlaunanna. Tryggt verðlaunafé í hverri umferð verður €3000!
PSÍ veitir sigurvegaranum á lokaborðinu verðlaunagrip til eignar og Coolbet bætir síðan við aukaverðlaunum (Added Value!!) fyrir öll sætin á lokaborðinu:
- 1. sæti: €1600 pakki á Coolbet Open 2026 (miði á main event plús hótel) + €600 TM og verðlaunagripur frá PSÍ
- 2.- 3. sæti: €1600 pakki á Coolbet Open 2026 (miði á main event plús hótel) + €300 TM
- 4. – 9. sæti: €550 pakki á Coolbet Open 2026 (t.d. miði á main event eða samsvarandi upphæð í önnur mót)
Hægt verður að framselja verðlaun til annars aðila ef vinningshafar sjá sér ekki fært um að taka þátt í mótinu.
Coolbet heldur hina frábæru pókerveislu Coolbet Open að nýju í Tallinn dagana 17.-23. ágúst 2026 og í þetta sinn fer hátíðin fram á hótelinu Swissotel. Stór hópur frá Íslandi sótti Coolbet Open í fyrra og var gríðarlega vel tekið á móti hópnum af forsvarsmönnum Coolbet og var einróma ánægja með ferðina.
Allir geta tekið þátt í mótunum en aðild að PSÍ er skilyrði fyrir þátttöku í stigakeppninni og möguleikanum á að vinna til hinna glæsilegu verðlauna sem Coolbet veitir í lokin, auk titilsins Coolbet bikarmeistarinn 2026! Ganga þarf frá aðild fyrir upphaf 3. umferðar til þess að stig telji í stigakeppninni.
Ath. að PSÍ og Coolbet áskilja sér rétt til þess að birta nöfn og notendanöfn á Coolbet hjá þátttakendum í mótaröðinni, eins og fram kemur í skilmálum fyrir hvert mót.
Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir að stigum í 9.sæti í lok mótaraðarinnar þá kemst sá á lokaborðið sem hefur náð hærra heildar verðlaunafé úr öllum mótunum.
Sigurvegarar í Coolbet bikarnum frá upphafi:
| 2020 | Brynjar Bjarkason | makk |
| 2021 | Magnús Valur Böðvarsson | magnusvalue |
| 2022 | Atli Þrastarson | Whiskymaster |
| 2023 | Einar Þór Einarsson | MrDude |
| 2024 | Atli Þór Þorsteinsson | Atli951 |
| 2025 | Axel Hreinn Steinþórsson | AxelHreinn |
–
Smellið hér til að sjá stöðu í stigakeppninni í Coolbet bikarnum.
Mótin í ár fara fram eftirtalda daga:
| Sun, 1 Feb 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 1 |
| Sun, 8 Feb 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 2 |
| Sun, 15 Feb 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 3 |
| Sun, 22 Feb 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 4 |
| Sun, 1 Mars 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 5 |
| Sun, 8 mars 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 6 |
| Sun, 15 mars 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 7 |
| Sun, 22 mars 2026 | Coolbet bikarinn – umferð 8 |
| Sun, 29 mars 2026 | Coolbet bikarinn – Lokaborð |
Stigagjöfin verður á eftirfarandi hátt fyrir hvert mót og munu 5 bestu mót af 8 gilda.
| 1. sæti | 20 |
| 2. sæti | 16 |
| 3. sæti | 13 |
| 4. sæti | 11 |
| 5. sæti | 10 |
| 6. sæti | 9 |
| 7. sæti | 8 |
| 8. sæti | 7 |
| 9. sæti | 6 |
| 10. sæti | 5 |
| 11. sæti | 4 |
| 12. sæti | 3 |
| 13. sæti | 2 |
| 14. sæti og upp úr | 1 |


