Coolbet bikarinn 2021

Coolbet býður AFTUR til veislu núna í ár með röð 8 móta sem haldin verður 4 sunnudaga í maí-júní og síðan aftur frá lokum ágúst og lýkur með lokaborði 26. sept. þar sem 9 efstu í stigakeppninni byrja með stakk í hlutfalli við stigatölu.

Þátttökugjald í hverju móti verður €50 og er greitt út verðlaunafé með venjulegum hætti í hverju móti.

PSÍ veitir sigurvegaranum á lokaborðinu verðlaunagrip til eignar og Coolbet bætir síðan við aukaverðlaunum (Added Value!!) fyrir fjóra efstu á lokaborðinu, 4 miðum á Coolbet Open Main Event sem fram fer í nóv. 2021.  Að auki fá tveir efstu fría gistingu á Hilton hótelinu sem mótið er haldið á í Tallinn í Eistlandi.  Semsagt:

  • 1. og 2 sæti:  Miði á Coolbet Open Main Event (€550) + Gisting á Hilton Tallinn Park (mið.-sun.) + €200 í farareyri!
  • 3. og 4. sæti:  Miði á Coolbet Open Main Event (€550)

Hægt verður að framselja verðlaun til annars aðila ef vinningshafar sjá sér ekki fært um að taka þátt í Coolbet Open.

Um 15 manna hópur frá Íslandi sótti Coolbet Open í nóvember 2019 og var gríðarlega vel tekið á móti hópnum af forsvarsmönnum Coolbet og var einróma ánægja með ferðina.

Allir geta tekið þátt í mótunum en aðild að PSÍ er skilyrði fyrir þátttöku í stigakeppninni og möguleikanum á að vinna til hinna glæsilegu verðlauna sem Coolbet veitir í lokin, auk titilsins Coolbet bikarmeistarinn 2021!  Ganga þarf frá aðild fyrir upphaf 3. umferðar til þess að stig telji í stigakeppninni.

Ath. að nöfn og notendanöfn á Coolbet allra þátttakenda í mótaröðinni verða birt og kemur fram í skilmálum fyrir hvert mót að PSÍ og Coolbet áskilji sér rétt til birtingar á réttum nöfnum þátttakenda.

Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir að stigum í 9.sæti í lok mótaraðarinnar þá kemst sá á lokaborðið sem hefur náð hærra heildar verðlaunafé úr öllum mótunum.

Smellið hér til að sjá stöðu í stigakeppninni eftir hvert mót.

(Hér má sjá lokastöðuna í Coolbet bikarnum 2020)

Mótin fara fram eftirtalda daga:

Sun, 23. maí 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 1
Sun, 30. maí 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 2
Sun, 6. júní 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 3
Sun, 13. júní 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 4
Sun, 29. ágúst 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 5
Sun, 5. sept. 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 6
Sun, 12. sept. 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 7
Sun, 19. sept. 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – umferð 8
Sun, 26. sept. 2021, kl. 20:00 Coolbet bikarinn – Lokaborð

Stigagjöfin verður á eftirfarandi hátt fyrir hvert mót og munu 6 bestu mót af 8 gilda.

1. sæti 20
2. sæti 16
3. sæti 13
4. sæti 11
5. sæti 10
6. sæti 9
7. sæti 8
8. sæti 7
9. sæti 6
10. sæti 5
11. sæti 4
12. sæti 3
13. sæti 2
14. sæti og upp úr 1