Bræðingur
Bræðingur er mót sem haldið var í tilraunaskyni í fyrsta sinn árið 2020 þar sem gerð var tilraun með að bræða saman net-póker og live póker.
Mótið hefst online þar sem leikið er niður í 9 keppendur. Þeir hittast síðan nokkrum dögum síðar í raunheimum, halda áfram með sama stakk og þeir voru með og spila lokaborðið augliti til auglitis.
Mótið féll niður 2021 og 2022 vegna Covid-19 en var síðan næst endurvakið árið 2025 og var þá haldið sem hluti af póker hátíðinni Midnight Sun Poker. Þátttökugjald í mótið hefur verið €50 með möguleika á re-entry.
Sigurvegarar í Bræðingi:
2020 | Tomasz Mróz |
2025 | Jesper Sand Poulsen |