Algengar spurningar og svör

Stjórn PSÍ fær iðulega spurningar um hitt og þetta varðandi starfsemi sambandsins og við munum reyna eftir bestu getu að safna þeim saman hér á þessari síðu:

 

Hvers vegna tekur PSÍ ekki við reiðufé?

  • Reiðufé er hvorki öruggur né staðfestanlegur afhendingarmáti á fjármunum. 
  • Það kostar mikla handavinnu að sýsla með reiðufé fyrir þá sem koma að framkvæmd móta.
  • Það er ekki ásættanleg að leggja þá ábyrgð á hendur mótsstjóra og annarra sem koma að framkvæmd móta að þurfa að handfjalta og burðast með milljónir í reiðufé.  

Hvers vegna er þá eingöngu boðið upp á kortagreiðslur í gegnum greiðslugátt PSÍ en ekki millifærslur?

  • Núverandi fyrirkomulag hefur m.a. þá kosti að tryggt er að rétt upphæð sé greidd hverju sinni og skýrt er fyrir hvað er verið að greiða og fyrir hvern.
  • Báðir aðilar fá greiðslukvittun með staðfestingu á því fyrir hvað er að greiða og þeirri upphæð sem greidd er.
  • Allt uppgjör vegna móta verður mun auðveldara fyrir umsjónarmenn móta og gjaldkera PSÍ hverju sinni.
  • Auðveldara er að framkvæma bakfærslur þegar þörf er á því.
  • Samhliða skráningar- og greiðsluferlinu er upplýsingum komið til PSÍ um þann félagsmann sem verið er að skrá á mót og í ferlinu er samþykkt skilmála sem erfitt væri að koma við með öðrum hætti.

Hvers vegna er ekki alltaf fast “rake” á mótum?

  • Þegar núverandi stjórn tók við þá þurfti að halda fast um taumana í fjármálum og ekki var unnt að taka neina áhættu með það að reka mót með tapi. Því var tekin upp sú stefna að reka öll mót á núlli og ákvarða prizepool þegar allur kostnaður lægi fyrir og að það væri einfaldlega heildarupphæð þátttökugjalda að frádregnum kostnaði við að halda mótið. Þessi stefna var síðan sett í reglugerð um mótahald sem finna má hér.
  • Þegar hagur okkar fór að vænkast var síðan bætt við ákvæði um að í smærri mótum mætti festa kostnaðarhlutfall og höfum við jafnan miðað við 15%, en í þeim mótum sem það hefur verið breytilegt hefur það jafnan verið á bilinu 13-17%