Coolbet býður enn og aftur til glæsilegrar veislu og stærri en nokkru sinni fyrr! Þetta er í áttunda sinn sem Coolbet bikarinn er haldinn og verðlaunapotturinn verður nú tvöfalt stærri en undanfarin ár eða samtals €9000!

Fyrsta umferð fer fram sunnudaginn 1.febrúar og leiknar verða 8 umferðir að þessu sinni og fer lokaborðið fram sunnudaginn 29.mars.

Að þessu sinni eru allir sem komast á lokaborðið að fara á Coolbet Open sem fram fer í ágúst 2026!  Þrír efstu fá svo að auki hótel og farareyri, eða samtals €1600 pakka.

Þátttökugjald í hverju móti verður €50 og í þetta sinn verða tvö re-entry leyfð og er greitt út verðlaunafé með venjulegum hætti í hverju móti, þ.e. ekkert er tekið úr prizepool í hverju móti vegna aukaverðlaunanna.  Tryggt verðlaunafé í hverri umferð verður €3000!

PSÍ veitir sigurvegaranum á lokaborðinu verðlaunagrip til eignar og Coolbet bætir síðan við aukaverðlaunum (Added Value!!) fyrir öll sætin á lokaborðinu:

  • 1. sæti:  €1600 pakki á Coolbet Open 2026 (miði á main event plús hótel) + €600 TM og verðlaunagripur frá PSÍ
  • 2. sæti:  €1600 pakki á Coolbet Open 2026 (miði á main event plús hótel) + €300 TM
  • 3. sæti:  €1600 pakki á Coolbet Open 2026 (miði á main event plús hótel)
  • 4. – 9. sæti:  €550 pakki á Coolbet Open 2026 (t.d. miði á main event eða samsvarandi upphæð í önnur mót)

Hægt verður að framselja verðlaun til annars aðila ef vinningshafar sjá sér ekki fært um að taka þátt í mótinu.

Coolbet heldur hina frábæru pókerveislu Coolbet Open að nýju í Tallinn dagana 17.-23. ágúst 2026 og í þetta sinn fer hátíðin fram á hótelinu Swissotel. Stór hópur frá Íslandi sótti Coolbet Open í fyrra og var gríðarlega vel tekið á móti hópnum af forsvarsmönnum Coolbet og var einróma ánægja með ferðina.

Allir geta tekið þátt í mótunum en aðild að PSÍ er skilyrði fyrir þátttöku í stigakeppninni og möguleikanum á að vinna til hinna glæsilegu verðlauna sem Coolbet veitir í lokin, auk titilsins Coolbet bikarmeistarinn 2026!  Ganga þarf frá aðild fyrir upphaf 3. umferðar til þess að stig telji í stigakeppninni.

Ath. að PSÍ og Coolbet áskilja sér rétt til þess að birta nöfn og notendanöfn á Coolbet hjá þátttakendum í mótaröðinni, eins og fram kemur í skilmálum fyrir hvert mót.

Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir að stigum í 9.sæti í lok mótaraðarinnar þá kemst sá á lokaborðið sem hefur náð hærra heildar verðlaunafé úr öllum mótunum.

Sigurvegarar í Coolbet bikarnum frá upphafi:

2020 Brynjar Bjarkason makk
2021 Magnús Valur Böðvarsson magnusvalue
2022 Atli Þrastarson Whiskymaster
2023 Einar Þór Einarsson MrDude
2024 Atli Þór Þorsteinsson Atli951
2025 Axel Hreinn Steinþórsson AxelHreinn

–

Smellið hér til að sjá stöðu í stigakeppninni í Coolbet bikarnum.

Mótin í ár fara fram eftirtalda daga:

Sun, 1 Feb 2026 Coolbet bikarinn – umferð 1
Sun, 8 Feb 2026 Coolbet bikarinn – umferð 2
Sun, 15 Feb 2026 Coolbet bikarinn – umferð 3
Sun, 22 Feb 2026 Coolbet bikarinn – umferð 4
Sun, 1 Mars 2026 Coolbet bikarinn – umferð 5
Sun, 8 mars 2026 Coolbet bikarinn – umferð 6
Sun, 15 mars 2026 Coolbet bikarinn – umferð 7
Sun, 22 mars 2026 Coolbet bikarinn – umferð 8
Sun, 29 mars 2026 Coolbet bikarinn – Lokaborð

Stigagjöfin verður á eftirfarandi hátt fyrir hvert mót og munu 5 bestu mót af 8 gilda.

1. sæti 20
2. sæti 16
3. sæti 13
4. sæti 11
5. sæti 10
6. sæti 9
7. sæti 8
8. sæti 7
9. sæti 6
10. sæti 5
11. sæti 4
12. sæti 3
13. sæti 2
14. sæti og upp úr 1