Stórbokki
Stórbokki var fyrst haldinn árið 2015 og var þá fyrsta mótið sem haldið var á vegum PSÍ með yfir 100þús. kr þátttökugjaldi. Mótið hefur síðan verið fastur liður í mótadagskrá PSÍ með buy-in sem að jafnaði er tvöfalt hærra en í Íslandsmóti sama árs. Mótið hefur verið haldið á einum degi og er jafnan haldið með veglegri hætti en önnur mót og m.a. boðið upp á veglegar veitingar fyrir þátttakendur og starfsfólk mótsins. Mótið var fellt niður á árinu 2020 vegna samkomutakmarkana en er aftur komið inn á mótadagskrána fyrir 2021.
Sigurvegarar í Stórbokka frá upphafi:
2015 | Garðar Geir Hauksson |
2016 | Steinar Edduson |
2017 | Jón Ingi Þorvaldsson |
2018 | Hafþór Sigmundsson |
2019 | Sveinn Rúnar Másson |
2020 | (fellt niður vegna Covid-19) |
2021 | (fellt niður vegna Covid-19) |
2022 | Matte Bjarni Karjalainen |
2023 | Egill Þorsteinsson |