Mótadagskrá 2020
Við byrjum með látum þetta árið en fyrstu mót ársins verða núna strax í janúar. Hér má sjá mótadagskrá ársins eins og hún liggur fyrir nú en dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar og viljum við biðja félagsmenn að rýna í hana og senda okkur athugasemdir sem allra fyrst ef þarna hafa verið valdar einhverjar óhentugar dagsetningar.
Við bætum nokkrum nýjungum inn á dagatalið og er óhætt að segja að hér sé verið að kynna metnaðarfyllsta dagatal sem PSÍ hefur skipulagt frá upphafi. Við vekjum athygli á því að ekki er tryggt að þau mót sem bætt er inn á dagatalið nú verði inni á því til frambúðar en það fer að sjálfsögðu eftir þátttöku nú í ár.
Fyrst ber að nefna COOLBET bikarinn sem hefst núna 12.janúar. Um er að ræða stigakeppni í röð 6 móta þar sem 5 bestu gilda og glæsileg aukaverðlaun verða í boði fyrir 4 stigahæstu keppendur í lokin.
Þann 19.janúar hefjum við síðan Bikarkeppni PSÍ. Það er einnig stigakeppni þar sem bestu 5 af 6 freezout mótum telja til stiga og keppt verður um titilinn Bikarmeistari PSÍ 2020.
Í apríl gerum við tilraun með að bræða saman net-póker og live póker í nýju móti sem við köllum Bræðing. Spilað verður niður í 8 manna lokaborð á netinu og síðan verður live lokaborð nokkrum dögum síðar.
Við viljum gjarnan auka þátt kvenna í mótum á vegum sambandsins og ef næg þátttaka næst þá blásum við til fyrsta kvennamótsins í sögu PSÍ í september.
Önnur mót verða á sínum stað og þess má til gamans geta að í byrjun febrúar munum við bjóða upp á free-roll mót fyrir félagsmenn þar sem 4 miðar á Smábokkann verða í boði en Smábokkinn fer síðan fram fyrstu helgina í mars.
Undanfarin tvö ár hefur aðsókn á öll mót á vegum PSÍ verið að aukast jafnt og þétt. Við vonum að að allir finni eitthvað við sitt hæfi í þessari dagskrá og að við náum þriðja árið í röð að auka þátttöku í öllum mótum sem hafa verið fastir liðir í dagskránni hjá okkur!
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!