Farsímareglur
Eftirfarandi reglur gilda um notkun farsíma og spjaldtölva á öllum mótum á vegum PSÍ:
- Hafa skal slökkt á hringitónum öllum stundum á mótsstað.
- Einungis er heimilt að nota tækin þegar leikmaður er ekki með lifandi hönd. Að öðrum kosti hefur gjafari heimild til að drepa hönd leikmanns.
- Aldrei má tala í síma við leikborð. Fara skal amk. 1 metra frá borði til að svara símtali. Ef leikmaður svarar í síma með lifandi hönd er hún umsvifalaust dauð.
- Leikmenn skulu leitast við að hafa farsíma eða önnur tæki ekki inni á leikborði.
- Gjafarar og mótsstjórar geta veitt aðvörun fyrir fyrstu brot á þessum reglum. Við ítrekuð brot getur mótsstjóri beitt refsingum (penalty) eða jafnvel brottrekstri úr móti.
(Síðast uppfært 5.maí. 2023)