Coolbet bikarinn 2024

Coolbet býður enn og aftur til glæsilegrar veislu en Coolbet bikarinn hefur göngu sína að nýju 28.janúar! Eins og undanfarin ár býður Coolbet upp á ADDED aukaverðlaun og í þetta sinn fyrir öll 9 sætin á lokaborðinu, samtals að verðmæti €4820 eða yfir 700þúsund ISK!!

Þátttökugjald í hverju móti verður €50 með möguleika á einu re-entry og er greitt út verðlaunafé með venjulegum hætti í hverju móti, þ.e. ekkert er tekið úr prizepool í hverju móti vegna aukaverðlaunanna.

PSÍ veitir sigurvegaranum á lokaborðinu verðlaunagrip til eignar og Coolbet bætir síðan við aukaverðlaunum (Added Value!!) fyrir öll sætin á lokaborðinu:

  • 1. – 2. sæti:  €1600 pakki á Coolbet Open 2024 (miði á main event plús hótel)
  • 3. – 4. sæti:  €550 pakki á Coolbet Open 2024 (t.d. miði á main event eða samsvarandi upphæð í önnur mót)
  • 5. – 9. sæti:  Coolbet Passport ticket (€130)

Hægt verður að framselja verðlaun til annars aðila ef vinningshafar sjá sér ekki fært um að taka þátt í mótinu.

Coolbet stefnir að því að halda hina frábæru pókerveislu Coolbet Open að nýju í ágúst á þessu ári en nákvæmar dagsetningar eða staðsetning liggur ekki fyrir. Stór hópur frá Íslandi sótti Coolbet Open í fyrra og árið áður og var gríðarlega vel tekið á móti hópnum af forsvarsmönnum Coolbet og var einróma ánægja með ferðirnar.

Allir geta tekið þátt í mótunum en aðild að PSÍ er skilyrði fyrir þátttöku í stigakeppninni og möguleikanum á að vinna til hinna glæsilegu verðlauna sem Coolbet veitir í lokin, auk titilsins Coolbet bikarmeistarinn 2023!  Ganga þarf frá aðild fyrir upphaf 3. umferðar til þess að stig telji í stigakeppninni.

Ath. að PSÍ og Coolbet áskilja sér rétt til þess að birta nöfn og notendanöfn á Coolbet hjá þátttakendum í mótaröðinni, eins og fram kemur í skilmálum fyrir hvert mót.

Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir að stigum í 9.sæti í lok mótaraðarinnar þá kemst sá á lokaborðið sem hefur náð hærra heildar verðlaunafé úr öllum mótunum.

Sigurvegarar í Coolbet bikarnum frá upphafi:

2020 Brynjar Bjarkason makk
2021 Magnús Valur Böðvarsson magnusvalue
2022 Atli Þrastarson Whiskymaster
2023 Einar Þór Einarsson MrDude

Smellið hér til að sjá stöðu í stigakeppninni í Coolbet bikarnum 2024.

(Hér má sjá lokastöðuna í Coolbet bikarnum 2023)

Mótin í ár fara fram eftirtalda daga:

Sun, 28 Jan 2024 Coolbet bikarinn – umferð 1
Sun, 4 Feb 2024 Coolbet bikarinn – umferð 2
Sun, 11 Feb 2024 Coolbet bikarinn – umferð 3
Sun, 18 Feb 2024 Coolbet bikarinn – umferð 4
Sun, 25 Feb 2024 Coolbet bikarinn – umferð 5
Sun, 3 mars 2024 Coolbet bikarinn – umferð 6
Sun, 10 mars 2024 Coolbet bikarinn – Lokaborð

Stigagjöfin verður á eftirfarandi hátt fyrir hvert mót og munu 4 bestu mót af 5 gilda.

1. sæti 20
2. sæti 16
3. sæti 13
4. sæti 11
5. sæti 10
6. sæti 9
7. sæti 8
8. sæti 7
9. sæti 6
10. sæti 5
11. sæti 4
12. sæti 3
13. sæti 2
14. sæti og upp úr 1